Stutti spretturinn bestur

hag / Haraldur Guðjónsson

Stuttir sprettir eða veruleg áreynsla í skamma stund er besta aðferðin við að draga úr hættu á sykursýki og hjartasjúkdómum.

James Timmons, prófessor í Edinborg og maður sérfróður um áhrif áreynslu á líkamann, segir að það sé miklu hollara að þessu leyti að leggja mikið á sig í fáar mínútur en að puða í ræktinni klukkutímum saman. Hann leggur til að þeir, sem nota æfingahjól, taki fjóra ákafa 30 sekúndna spretti en hvíli sig á milli í nokkrar mínútur.

Timmons segir að á hálfum mánuði leiði þetta til þess að virkni insúlíns batni um 23%. Segir hann að þetta eigi við um fólk á öllum aldri og leggur til að ráðleggingar um hreyfingu verið endurskoðaðar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert