Geimferjuferð frestað á síðustu stundu

Geimferjan Endeavour á skotpallinum á Flórída.
Geimferjan Endeavour á skotpallinum á Flórída. Reuters

Starfsmenn bandarísku geimferðastofnunarinnar, NASA, ákváðu í morgun að fresta ferð geimferjunnar Endeavour til alþjóðlegu geimstöðvarinnar 10 mínútum fyrir fyrirhugað geimskot. Ástæðan var sú að of lágskýjað var yfir Kanaveralhöfða á Flórída þaðan sem skjóta á ferjunni á loft. 

Til stendur að senda ferjuna af stað í fyrramálið ef veður verður hagstætt. Ferjan á að flytja stóran glugga og annan búnað til geimstöðvarinnar.  Geimferðin á að standa yfir í 13 sólarhringa.

Áhöfn geimferjunnar á leið í ferjuna í morgun. Ferðinni var …
Áhöfn geimferjunnar á leið í ferjuna í morgun. Ferðinni var frestað vegna óhagstæðra veðurskilyrða. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert