Samkomulag um drög á COP21

Vonir standa til þess að samkomulag liggi fyrir í lok …
Vonir standa til þess að samkomulag liggi fyrir í lok næstu viku. AFP

Fulltrúar á loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París, COP21, hafa samþykkt textadrög sem sem menn vonast til að verði grundvöllur að nýju samkomulagi um samdrátt á losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu.

Ráðherrar munu fjalla um drögin, sem telja 48 blaðsíður, á mánudag, að því er fram kemur á vef BBC.  Markmiðið er að komast að heildstæðu samkomulagi fyrir lok næstu viku. 

Umhverfisráðherra Frakka segir að menn verði að yfirstíga stórar pólitískar hindranir eigi menn að komst í mark. 

Fulltrúar frá 195 ríkjum unnu að gerð draganna í ráðstefnuhöllinni í Le Bourget í nótt, en Frakklandsforseti hafði gefið mönnum frest fram á hádegi í dag til að komast að sameiginlegri niðurstöðu.

Ráðherra munu nú fá drögin í hendur, en það verður hlutverk þeirra að taka pólitískar ákvarðnir eigi skjalið að umbreytast í samkomulag til langs tíma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert