Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is Hér eru allar verslanir tómar og viðbúnaður verulegur," sagði Þorbjörn Emil Kjærbo er Morgunblaðið náði tali af honum síðdegis í gær á heimili sínu í Havana, höfuðborg Kúbu.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá stjórn Geðlæknafélags Íslands: "Í kjölfar úrskurðar samkeppnisstofnunar um að ganga eigi til samninga við sjálfstætt starfandi klíníska sálfræðinga birti Mbl. í leiðara sínum 15.
Meira
GÆSLUVARÐHALD yfir 16 ára gömlum dreng, sem fór fyrir hópi manna sem frömdu mannrán við Bónus á Seltjarnarnesi 2. september síðastliðinn, hefur verið framlengt um 8 vikur, eða til 16. desember næstkomandi.
Meira
Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is LANDSPÍTALA - háskólasjúkrahúsi (LSH) hefur verið falið að undirbúa framleiðslu lífsnauðsynlegra innrennslisvökva á vegum spítalans. Er það m.a.
Meira
BJÖRN Bjarnason, dómsmálaráðherra, setti í gær Sigurð Tómas Magnússon, lögfræðing og fyrrverandi héraðsdómara og formann dómstólaráðs, sem ríkissaksóknara til að fara með mál ákæruvaldsins í Baugsmálinu, gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni o.fl.
Meira
ODDUR Friðriksson, aðaltrúnaðarmaður starfsmanna við Kárahnjúka, segir að þeir muni óska eftir fundi með Landsbankanum til að fara yfir hvaða augum bankinn líti bakfærslur af bankareikningum tveggja Pólverja sem starfsmannaleigan 2 B framkvæmdi.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt fyrrum starfsmann sambýlis fyrir fatlaða í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn þroskaheftri konu sem var vistmaður á sambýlinu.
Meira
GERT er ráð fyrir því að hátt í eitt þúsund manns taki þátt í þingi Norðurlandaráðs sem haldið verður í Reykjavík, dagana 25. til 27. október nk. Búist er við að um fimmtíu blaðamenn frá öllum Norðurlöndunum muni fylgjast með þinginu.
Meira
Rio de Janeiro. AP. | Brasilíumenn munu greiða um það atkvæði á morgun hvort takmarka eigi sölu á skotvopnum og skotfærum. Benda kannanir eindregið til þess, að það verði fellt.
Meira
ÖLLUM börnum er velkomið að koma í kjallara verslunarhúsnæðis Yggdrasils við Skólavörðustíg 16 í dag, laugardaginn 22. október, kl. 13-15, og mála myndir með náttúrulegum litum undir leiðsögn Helgu frá Waldorfleikskólanum Sólstöfum.
Meira
Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is ÍSLAND er á hraðri siglingu frá hinu norræna módeli samábyrgs og öflugs opinbers velferðarkerfis, sem hefur einkennt Norðurlöndin, í átt að samfélagi að amerískri fyrirmynd, sagði Steingrímur J.
Meira
Húsavík | Fálki einn sat sem fastast í grjótinu meðfram veginum á milli hafnarsvæðanna á Húsavík þegar ljósmyndari átti þar leið um fyrir skömmu. Fálkinn skeytti engu um bílaumferðina né ágang ljósmyndara og sat sem fastast þar til flautað var á hann.
Meira
FELLIBYLURINN Wilma kom upp að ströndum Yucatan-skaga í Mexíkó í gær þar sem hann reif upp tré með rótum og kubbaði í sundur rafmagnsstaura. Myndin er frá bænum Cancun en bylnum fylgdi mikið úrhelli.
Meira
Ósló. AP. | Norsk vísindakona, Anita Lill Hansen, hyggst nú í samstarfi við fangelsisyfirvöld rannsaka hvort hægt sé að draga úr glæpatíðni með því að auka hlut fiskmetis í fæðu fanga.
Meira
Selfoss | Heilbrigðisstofnun Suðurlands var sameinuð í eina stofnun 1. september 2004 og nær yfir allar heilsugæslustöðvar á Suðurlandi, Heilbrigðisstofnunina á Selfossi með sjúkrahúsið þar og Réttargeðdeildina á Sogni í Ölfusi.
Meira
Þegar aðrar virkjunarframkvæmdir en hjá Impregilo eru skoðaðar við Kárahnjúka kemur í ljós að langflestir verkþættir eru á áætlun. Björn Jóhann Björnsson og Steinunn Ásmundsdóttir ljúka frásögn af yfirferð sinni um svæðið í máli og myndum.
Meira
Selfoss | Fyrstu íbúðirnar í fjölbýlishúsi fyrir eldra fólk við Árveg á Selfossi voru afhentar um síðustu helgi. Húsið er eitt stærsta íbúðarhús á Suðurlandi, 5 þúsund fermetrar að stærð, með 47 íbúðum, auk samkomusalar og bílageymslu.
Meira
KRISTINN H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi það í umræðum á Alþingi í fyrradag að Þorsteini Pálssyni sendiherra skyldi hafa verið falið að ritstýra og rita sögu þingræðis á Alþingi.
Meira
HÁTÍÐAR- og baráttufundur verður haldinn í Sjallanum þann 24. október nk. kl. 15 í tilefni af því að þá verða þrjátíu ár liðin frá kvennafrídeginum árið 1975.
Meira
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff voru í gær í heimsókn í Hafnarfirði og tóku Lúðvík Geirsson bæjarstjóri, Guðmundur Sophusson sýslumaður og aðrir forsvarsmenn Hafnarfjarðarbæjar á móti forsetahjónunum við bæjarmörkin í...
Meira
MENNTARÁÐ Reykjavíkur hefur falið menntasviði að efna til umræðu við fagfólk og foreldrasamtök um hlutverk skólanna í umræðu og fræðslu um kynferðisofbeldi gegn börnum. Var þetta samþykkt á fundi menntaráðs á fimmtudag.
Meira
AFLAMARK sem nam 270.173 tonnum var flutt milli óskyldra aðila á síðasta fiskveiðiári. Verðmæti þessa aflamarks var um 8,8 milljarðar króna. Þetta er 15.
Meira
Borgfirðingar og Skagamenn fundu sex kindur í réttum í haust sem voru úr Kjósinni og höfðu því brotið lög og reglur um sauðfjárvarnir með því að fara á milli varnarhólfa. Dauðadómur liggur við þegar ferfætlingar eiga í hlut.
Meira
LÖGMAÐUR sem tekið hafði að sér að halda uppi vörnum í máli eins af undirsátum Saddams Husseins, fyrrum Íraksforseta, fannst látinn í Bagdad í morgun. Maðurinn hafði verið myrtur.
Meira
LJÓST er að óútkomin glæpasaga Yrsu Sigurðardóttur, Þriðja táknið, verður gefin út í að minnsta kosti þrjátíu löndum á komandi misserum en samningar tókust í gær milli bókaforlagsins Veraldar og spænsku útgáfusamsteypunnar Santillana um útgáfu á bókinni...
Meira
Sydney. AFP. | Rúmlega sjötugur maður, sem varð bráðkvaddur í bíl sínum á bílastæði við stórverslun í Melbourne í Ástralíu, var þar líklega í heila viku án þess að nokkur áttaði sig á því.
Meira
Unnur Stefánsdóttir hélt á fána Þau leiðu mistök urðu við vinnslu mannlífsfréttar um heilsuleikskóla í Vogum á Vatnsleysuströnd í Morgunblaðinu í gær, að rangnefnd var á mynd Unnur Stefánsdóttir, sem hélt á fána ásamt Salvöru Jóhannesdóttur.
Meira
MAÐURINN sem lést á fimmtudagsmorgun þegar hann lenti í drifskafti dráttarvélar sinnar hét Örn Einarsson, bóndi í Miðgarði í Stafholtstungum í Borgarfirði. Örn var fæddur 31. desember 1947 og lætur eftir sig eiginkonu og fjögur...
Meira
RÉTTARHÖLDUM yfir karli og konu, sem ákærð eru fyrir að bana Gísla Þorkelssyni í bænum Boksburg í Suður-Afríku í júlí sl., hefur verið frestað í annað sinn skv. suður-afrískum fréttamiðli.
Meira
Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is TILBOÐ Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs til Samfylkingarinnar um að taka höndum saman, koma ríkisstjórninni frá völdum og mynda græna velferðarstjórn stendur enn, sagði Steingrímur J.
Meira
NÓG hefur verið um að vera á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves sem fram fer í Reykjavík. Hátíðinni lýkur í kvöld en í gærkvöldi var mikill mannfjöldi saman kominn á skemmtistaðnum NASA þar sem Stórsveit Nix Noltes tróð upp.
Meira
Eftir Kristján Jónsson HINN heimsþekkti enski kylfingur, Nick Faldo, hefur verið ráðinn til þess að hanna golfvöll í Þorlákshöfn, sem áætlað er að taka í notkun haustið 2008.
Meira
Hvammstangi | Sláturhús og kjötvinnsla Kaupfélags Vestur-Húnvetninga (KVH) á Hvammstanga hefur nú fengið alþjóðlega vottun Vottunarstofunnar Túns til vinnslu á lífrænum hráefnum.
Meira
Strandflutningaskipið Jaxlinn hefur verið selt til danska skipafyrirtækisins Janus Andersen & Co. Einar Vignir Einarsson, skipstjóri Jaxlsins og talsmaður fyrirtækisins Sæskipa ehf.
Meira
OSTA- og smjörsalan ræður ekki verði á undanrennudufti heldur er sú ákvörðun í höndum verðlagsnefndar búvöru og því er ekki um það að ræða að fyrirtækið hafi misbeitt markaðsráðandi stöðu sinni gagnvart Mjólku.
Meira
Washington. AFP. | Bandarískir og evrópskir vísindamenn óttast, að ísþekjan yfir sjó á norður- og suðurskautinu geti brotnað upp og valdið því, að sjávarborð hækki meira en áður hefur verið gert ráð fyrir.
Meira
HEITI sjónvarpsþáttaraðarinnar "Íslenski bachelorinn", sem sýnd er á Skjá einum, verður ekki breytt þrátt fyrir að Íslensk málnefnd hafi gert athugasemd við notkun orðsins "bachelor".
Meira
Sigurður Arnalds, talsmaður Landsvirkjunar vegna Kárahnjúkavirkjunar, segir að enn sé vonast til þess að borun aðrennslisganganna verði lokið haustið 2006 og að unnt verði að fylla þau með vatni úr Hálslóni í lok janúar 2007.
Meira
Eftir Bryndísi Sveinsdóttur og Jón Aðalstein Bergsveinsson RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær frumvarp um að nema úr gildi undanþágur um tóbaksnotkun á veitingahúsum og skemmtistöðum.
Meira
ÍSLENSKA óperan og EXTON hafa undirritað samstarfssamning sem felur í sér að EXTON kemur að kostun tveggja 42 flatskjáa sem settir verða upp annars vegar í anddyri Óperunnar og hins vegar í glugga miðasölunnar sem snýr út að Ingólfsstræti.
Meira
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær að verja 10 milljónum króna til þess að stofna sérstakan rannsóknarsjóð, Jafnréttissjóð, sem ætlað er að veita fé til rannsókna á grundvelli umsókna á kvennafrídegi ár hvert, þann 24. október, í fyrsta sinn á næsta ári.
Meira
Sjónþing Jóns | Í dag kl. 15 verður haldið í Deiglunni, Sjónþing Jóns Laxdal. Spyrlar verða Jón Proppé, Arna Valsdóttir og Þröstur Ásmundsson, en fundarstjóri Hannes Sigurðsson.
Meira
Í DAG verður haldin hátíð á Skólavörðustíg til að fagna fyrsta vetrardegi en að henni standa búðareigendur við stíginn ásamt Landssambandi sauðfjárbænda og Markaðsráði kindakjöts.
Meira
FYRST skal reyna á vilja bæjaryfirvalda Dalvíkurbyggðar til að sameina í raun á ný byggðalagið með því að koma til móts við Svarfdælinga og kröfur þeirra um endurheimt Húsabakkaskóla.
Meira
Varsjá. AFP. | Mjög hefur dregið saman með frambjóðendunum tveimur sem takast á um embætti forseta Póllands. Síðari umferð forsetakosninganna fer fram á sunnudag og er fylgi frambjóðendanna nú mjög svipað, ef marka má skoðanakannanir.
Meira
Eftir Andra Karl andri@mbl.is FRIÐRIK Sigtryggsson, einn af velunnurum Barnaspítala Hringsins, hefur ákveðið að láta allar sínar eigur renna til spítalans eftir sinn dag.
Meira
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, ræddi þá stöðu sem komin er upp í efnahagsmálum í setningarræðu á landsfundinum í gær.
Meira
Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is STJÓRNVÖLD í Sýrlandi ítrekuðu í gær að þau bæru enga ábyrgð á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons.
Meira
Í SÉRATKVÆÐI Jóns Steinars Gunnlaugssonar hæstaréttardómara í máli ríkissaksóknara gegn karlmanni, sem dæmdur var í 2½ árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur fyrrum sambýliskonu sinnar, eru færð rök fyrir sýknu ákærða hvað einn ákærulið varðar.
Meira
Höfn | Hornfirska skemmtifélagið frumsýndi "Rokk í 50" ár á Hótel Höfn um síðustu helgi í mestu úrkomu sem sögur fara af á Hornafirði. Rigning og flóð komu ekki í veg fyrir að gestir skemmtu sér hið besta á sýningunnni.
Meira
ÍSLENSKIR starfsmenn við gerð Kárahnjúkavirkjunar og lagningu Fljótsdalslínu 3 og 4 eru nú um 450. Er þetta heldur hærra hlutfall en hefur verið af heildarfjölda starfsmanna við framkvæmdirnar, sem nú er 1.
Meira
Ég er flutt í gamla bæinn minn. Eftir sex ára fjarveru ákvað ég að snúa heim á æskuslóðirnar og ala þar upp þrjá syni mína. Héðan á ég góðar minningar og hér vil ég að strákarnir mínir vaxi úr grasi og verði stórir og sterkir.
Meira
DRÖG að nýrri viðbragðsáætlun Landspítala - háskólasjúkrahúss (LSH) voru kynnt sviðsstjórum, landlækni og sóttvarnalækni ásamt fleirum í gær. Áætlunin tekur til þriggja atburðaflokka. Það er hópslysa og hópveikinda, t.d.
Meira
Þingeyjarsveit | Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti á fundi sínum í fyrradag samhljóða eftirfarandi bókun varðandi þekkingarsetur Þingeyinga: "Sveitarstjórn skorar á fjárlaganefnd Alþingis, þingmenn og ráðherra sem koma að málaflokknum að...
Meira
Eftir landsfund Samfylkingarinnar í vor var ljóst að sá flokkur stefndi að því að mynda hér hreinræktaða vinstristjórn, þá fyrstu í sögunni, með samstarfi við Vinstrihreyfinguna - grænt framboð. Ræða Steingríms J.
Meira
Stuðsveitin Nortón stígur á svið á Pravda í kvöld kl. 21 en sveitin er á fullu þessa dagana við að semja lög á væntanlega plötu hennar sem kemur út snemma á næsta ári. Á tónleikunum í kvöld munu gamlir slagarar heyrast á borð við "Bankastræti nr.
Meira
ÁSA Ólafsdóttir opnar sýningu í galleríi húnoghún í dag kl. 15. Verkin eru unnin með blandaðri tækni á striga. Rauði þráðurinn í myndverkunum eru pöntunarseðlar frá bændum árið 1890 til verslunar Lefolii á Eyrarbakka.
Meira
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is Þegar nýr nágranni flytur í hverfið umturnast líf samkynhneigðra hjóna í Grafarvogi heldur betur... Með óvæntum afleiðingum. Þannig er rammi nýs leikverks úr smiðju þeirra Gauts G.
Meira
JPV útgáfa hefur sent frá sér sjöttu bókina um Kaftein Ofurbrók eftir Dave Pilkey . Hún heitir Kafteinn Ofurbrók og líftæknilega horskrímslið. Fyrri hluti: Hnerrað að næturlagi. Nú lenda Georg og Haraldur í virkilega klístruðum aðstæðum.
Meira
Hafnarhúsið 20.00 Lights on the Highway 20.40 Viking Giant Show 21.20 Rass 22.00 Jeff Who? 22.40 Union of Knives (UK) 23.30 The Zutons Þjóðleikhúskjallarinn 22.30 Helgi Valur 23.10 Idir 23.50 Lára 00.30 The Rushes (UK) 01.10 Ampop 01.50 Úlpa 02.
Meira
Í TILEFNI þess að Sjón hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár býður Norræna húsið til dagskrár á sunnudaginn kl. 16. Fimm handhafar bókmenntaverðlaunanna fyrr og nú lesa úr verkum sínum.
Meira
Djasskvartettinn LOS leikur á Múlanum í Þjóðleikhúskjallaranum á sunnudaginn kl. 21.30. Kvartettinn skipa þau Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Sunna Gunnlaugsdóttir á píanó, Scott Mclemore á trommur og Róbert Þórhallsson á kontrabassa.
Meira
Í kvöld verður sýnd hátíðardagskrá frá Kaupmannahöfn þar sem því er fagnað að hálf öld er liðin síðan Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva var fyrst haldin. Meðal þeirra sem koma fram eru Celine Dion og Johnny...
Meira
Eftir Höskuld Ólafsson hoskuldur@mbl.is HLJÓMSVEITIN Worm Is Green frá Akranesi sendi frá sér plötuna Automagic árið 2002 og var þá tilnefnd Bjartasta vonin á ÍTV. Nú er önnur breiðskífan komin og kallast hún Push Play .
Meira
HALDNIR verða tónleikar í Nýheimum, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, á sunnudaginn kl. 20. Þar munu píanóleikararnir Þórarinn Stefánsson og Jón Sigurðsson leika 4-hent á píanó verk eftir Debussy, Barber, Poulenc og Schubert.
Meira
Fregnir herma að ofurfyrirsætan Kate Moss , sem nú dvelur á meðferðarstöð í Bandaríkjunum vegna kókaínfíknar, fái hlutverk í næstu kvikmynd um James Bond, Casino Royale . Fyrrverandi kærasti hennar, Daniel Craig , mun fara með hlutverk njósnarans.
Meira
Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is SAMNINGAR hafa tekist milli bókaforlagsins Veraldar og spænsku útgáfusamsteypunnar Santillana um útgáfu á Þriðja tákninu, óútkominni glæpasögu Yrsu Sigurðardóttur, í átján spænskumælandi löndum.
Meira
Júdó | Júdófélag Reykjavíkur varð 40 ára um liðna helgi og í tilefni af því verður haldin keppni hjá yngstu iðkendunum og sýning hjá þeim eldri í dag frá kl. 14-16 í húsakynnum félagsins í Ármúla 17a.
Meira
Um helgina fer fram þriðja mótið í A1 Grand Prix-mótaröðinni. Að þessu sinni fer mótið fram í Portúgal. Bein útsending verður frá mótinu í opinni dagskrá á sjónvarpsstöðinni Sýn, bæði á laugardag og sunnudag.
Meira
UM helgina verða tvennir tónleikar á Tónlistardögum Dómkirkjunnar. Í dag kl. 17.00 mun Guðný Einarsdóttir leika fjölbreytta barokktónlist á orgel Dómkirkjunnar og auk þess Tokkötu eftir Jón Nordal.
Meira
L. RON Hubbard er sá rithöfundur heims sem þýddur hefur verið á flest tungumál samkvæmt tilkynningu sem Heimsmetabók Guinness sendi nýverið frá sér.
Meira
BOTN dagsins í þættinum Orð skulu standa er ortur vegna upphafs rjúpnavertíðar um síðustu helgi, þegar margir náðu sér í jólasteik: Bráðum koma blessuð jólin með betri mat en síðast var.
Meira
ANDRÉ Bachmann er iðinn við kolann þessa dagana. Tónlistardagskrá hans á Kaffi Óperu nýtur töluverðra vinsælda en þar skemmtir hann ásamt Birgi J.
Meira
Rapparinn 50 Cent segir að þótt hann eigi ekki í neinum vandræðum með að verða sér úti um stelpur haldist sér aftur á móti illa á þeim. "Ég er virkilega góður í sumu en við annað er ég ekki sérlega lunkinn," sagði hann við MTV News.
Meira
RÚSSNESKI dansflokkurinn Rossiyanochka kemur fram í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, og á fjölskylduhátíð í Smáralind um helgina í tilefni Rússneskrar menningarhátíðar í Kópavogi.
Meira
Út er komið myndskreytt ritverk um sögu Verzlunarskóla Íslands 1905-2005. Höfundar bókarinnar eru Lýður Björnsson sagnfræðingur og Sigrún Sigurðardóttir menningarfræðingur. Ritstjóri bókarinnar er Jón Karl Helgason.
Meira
Heimildarmynd. Leikstjórn og handrit: Ólafur Jóhannesson. Kvikmyndataka: Ragnar Santos. Tónlist: Barði Jóhannsson. Aðalpersónur: Zakaria Anbari, Zlatko Krickic, St Paul Edeh, Alex Lopez Munoz, Einar Xavier Sveinsson. 95 mínútur.
Meira
SAMBAND íslenskra myndlistarmanna tekur ekki afstöðu til þess hvort myndlistarmenn eigi að taka þátt í samkeppni Landsvirkjunar um sköpun listaverks við Kárahnjúkavirkjun eða ekki.
Meira
SJÓNÞING Jóns Laxdal verður haldið í Deiglunni á Akureyri í dag kl. 15. Spyrlar eru Jón Proppé, Arna Valsdóttir og Þröstur Ásmundsson og fundarstjóri Hannes Sigurðsson.
Meira
Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is BRESKA tríóið Zoot Woman hlakkar til að koma til Íslands til að spila á Iceland Airwaves, þó svo að hljómsveitin Babyshambles spili ekki með í þetta sinn.
Meira
ART Gallery Sjöfn Har., Skólavörðustíg 25a, kynnir verk skosku listakonunnar Ishbel Macdonald D.A. í dag kl. 14.00 á Skólavörðustígshátíðinni. Ishbel fæddist í Skotlandi og lauk myndlistarnámi við Listháskólann í Glasgow 1980.
Meira
Bókaforlagið Bjartur hefur gefið út skáldsöguna Næturvaktina eftir Kirino Natsuo í íslenskri þýðingu Jóns Halls Stefánssonar. Aðalsöguhetjan er ung kona sem búsett er í úthverfi Tókíó og slysast til þess að drepa eiginmann sinn í bræðiskasti.
Meira
BUBBI Morthens og Robert Jackson fagna hér útgáfu bókarinnar Storlax, enskri þýðingu bókarinnar Djúpríkisins sem kom út fyrir jólin í fyrra, í veiðiversluninni Farlows í London.
Meira
ÍSLENSKI dansflokkurinn flutti þrjú verk í Baltoppen í Kaupmannahöfn á fimmtudagskvöld; Wonderland eftir Jóhann Frey Björgvinsson, Critic's choice? eftir Peter Anderson og Pocket Ocean eftir portúgalska danshöfundinn Rui Horta.
Meira
Annað Airwaves kvöld var þægilegra en það fyrsta að nú gat maður komist inn á staði, enda bættust við Þjóðleikhúskjallarinn og Listasafn Reykjavíkur sem dreifði aðsókninni á fleiri staði.
Meira
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is VERK eftir myndlistarmanninn Rúrí verður sett upp í nýju skúlptúrsafni á Ítalíu, Creator Vesevo, sem opnað verður hinn 29. október næstkomandi.
Meira
Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is HLJÓMSVEITIN The Zutons kemur frá Liverpool þar sem allir tónlistarmenn reyna að gera eitthvað frumlegt og öðruvísi til að sleppa við að vera sífellt bornir saman við Bítlana.
Meira
Höfundur: Robin Hawdon. Þýðandi: Örn Árnason. Leikstjóri Magnús Geir Þórðarson. Leikmynd og búningar: Frosti Friðriksson. Lýsing Björn Bergsteinn Guðmundsson.
Meira
Eftir Árna Magnússon: "Miðað er við að eigi síðar en 3. mars 2006 verði ríkisstjórninni skilað tillögu að aðgerðaáætlun gegn heimilisofbeldi og kynferðislegu ofbeldi. Lagt er til að sjónum verði sérstaklega beint að börnum sem verða fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis."
Meira
Sigrún Jónsdóttir fjallar um kvennafrídag og launamisrétti: "Það hlýtur að vera jafnréttismarkmið að allir hafi möguleika á að framfleyta sér og sínum með mannsæmandi hætti."
Meira
Frá Matthildi Á. Helgadóttur: "HÉR eru 24 ástæður fyrir því að ég ætla að ganga út klukkan 14.08 hinn 24. október: 1. Konur á Íslandi hafa einungis 64,15% af tekjum karla. 2. Einungis þriðjungur alþingismanna er konur. 3. Örfáar konur eru í stjórnum fjármálafyrirtækja á Íslandi. 4."
Meira
Lúðvík Börkur Jónsson fjallar um jafnréttismál: "Margt hefur áunnist og öruggt að almennt hafa fráskildir feður tekið meiri ábyrgð á umönnun og velgengni barna sinna en áður tíðkaðist."
Meira
Erna Magnúsdóttir fjallar um aðbúnað og endurhæfingu krabbameinssjúkra: "Iðjuþjálfun er einn hlekkurinn í hinu faglega starfi og stuðlar að því að auka virkni og þar með þátttöku einstaklingsins í þjóðfélaginu."
Meira
Þórdís Hrönn Pálsdóttir fjallar um almenningssamgöngur: "Ég vildi ekki vera ferðamaður í Reykjavík ef ég þyrfti að vera upp á almenningssamgöngur komin."
Meira
Björn Tryggvason fjallar um vandamál þeirra sem stama og úrbætur í þeim efnum: "Félagslega einangrunin er að mínu mati það sem þarf að skoða og ráða bót á."
Meira
Katrín Jakobsdóttir fjallar um mennta- og kjaramál: "Þau ættu að blása til nýrrar sóknar eftir fjármagni en ekki láta þröngva sér inn á leið heimskulegrar einkavæðingarkreddufestu."
Meira
Snjólfur Ólafsson fjallar um jafnréttismál: "Í grófum dráttum ríkir jafnrétti kynjanna á Íslandi og litlir möguleikar á að breyta lögum þannig að jafnrétti kynjanna verði meira en það er."
Meira
Eftir Rakel Adolphsdóttur: "...munum við gefa þetta form krónunnar út sem barmmerki og að sjálfsögðu munum við selja konum þau á 65 krónur en körlum á 100 krónur."
Meira
Lára Ómarsdóttir fjallar um kvennafrídaginn 24. október: "Ég er ekki ánægð með að vera minna metin en karlmaður. Ég ætla að berjast fyrir framtíð dætra minna."
Meira
Guðmundur Örn Jónsson fjallar um launamun: "Þrátt fyrir að hafa viljandi valdið byltingu í launamun með breytingu á skattkerfi, gjafakvóta og einkavæðingu til vildarvina, hefur ríkisstjórnin ekki sótt neitt umboð til þess frá þjóðinni."
Meira
Ögmundur Jónasson fjallar um alþjóðastjórnmál: "Varðandi efnahagsaðstoð, þá er Írak án vafa eitt auðugasta land veraldar af náttúruauðæfum. Þess vegna er landið nú hersetið."
Meira
Jón Yngvi Jóhannsson og Sverrir Jakobsson svara Sólveigu Pétursdóttur, forseta Alþingis: "Það geta ekki talist eðlileg vinnubrögð að ráða til ritunar jafn viðamikils fræðirits og hér um ræðir mann sem enga reynslu hefur af slíkum ritstörfum."
Meira
Jón Kristjánsson fjallar um stofnstærð fisks: "Eðlilegasta lausnin á þessum sandsílaskorti og fugladauða er að mínu mati sú að stórauka þorsk- og ýsuveiðar..."
Meira
Haraldur Páll Sigurðsson fjallar um málefni öryrkja: "Það er því skylda ríkis og sveitarfélaga að sjá til þess að fátæklingar á Íslandi hafi laun til að geta lifað mannsæmandi lífi..."
Meira
Páll V. Daníelsson fjallar um stjórnarskrárbreytingar: "Grundvöllur undir því starfi er stjórnarskrá sem byggist á fullkomnu lýðræði einstaklingsins og að friður sé tryggður um embættið."
Meira
Magnús Stefánsson fjallar um málefni Landhelgisgæslunnar: "Nú hillir undir endurnýjun á varðskipi og flugvél Landhelgisgæslunnar, þökk sé sölunni á Símanum."
Meira
Tour de France á göngustíg GÖNGUSTÍGARNIR vestast á Seltjarnarnesi eru vinsælir af útivistarfólki: Gangandi fólki, skokkandi fólki, hjólreiðafólki og fólki á línuskautum, og fer þetta yfirleitt allt vel saman.
Meira
Anna Kristín Valdimarsdóttir fæddist í Gularáshjáleigu í A-Landeyjahreppi 11. apríl 1917. Hún lést á Kumbaravogi 13. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Valdimar Þorvarðarson, bóndi í Gularáshjáleigu, síðar trésmiður á Eyrarbakka, f. 14.
MeiraKaupa minningabók
Eydís Guðmundsdóttir fæddist í Borgarnesi 17. febrúar 1951. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 17. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðmundur V. Sigurðsson, bifreiðastjóri hjá Kaupfélagi Borgfirðinga, f.
MeiraKaupa minningabók
Jóhann Hermannsson fæddist á Bakka við Húsavík 6. október 1921. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 16. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Friðný Óladóttir, f. í Sveinungsvík í Þistilfirði 9. janúar 1889, d. 1.
MeiraKaupa minningabók
Magnús Pálmi Eyjólfsson, fv. sýslufulltrúi á Hvolsvelli, fæddist á Undralandi í Reykjavík 22. júlí 1920. Hann lést á sjúkrahúsi í Austurríki 12. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðríður Magnúsdóttur rjómabússtýra, f. 2. nóvember 1882, d. 2.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Valdimar Olgeirsson, fæddist á Húsavík 23. maí. 1942. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík laugardaginn 15. október síðastliðinn. Foreldrar hans eru Olgeir Sigurgeirsson, fv. útgerðarmaður, f. 22.5.
MeiraKaupa minningabók
AFLAMARK sem nam 270.173 tonnum var flutt milli óskyldra aðila á síðasta fiskveiðiári. Verðmæti þessa aflamarks var um 8,8 milljarðar króna. Þetta er 15.
Meira
SÍLDARVINNSLAN í Neskaupstað hf. er nú að hefja byggingu á nýrri frystigeymslu fyrir sjávarafurðir. Verður fyrsta skóflustungan að byggingunni tekin í dag. Geymslan verður 6.230 fermetrar að stærð auk tækniklefa og tengibyggingar við eldri geymslu.
Meira
ÁLVERÐ á markaði í London fór upp í 2.000 dollara á tonnið í vikunni og hefur ekki verið hærra síðan í febrúar, en þá hafði ekki sést jafn hátt álverð í mörg ár.
Meira
DÆGURVERÐ á 95 oktana blýlausu bensíni heldur áfram að lækka á heimsmarkaði og við lokun markaðar í Rotterdam í fyrradag kostaði tonnið 552 dollara. Lækkaði það um 11 dollara frá deginum áður. Þetta er lægsta verð á bensíni síðan 3. júlí sl.
Meira
FARÞEGAR Icelandair í september voru tæplega 132 þúsund og fjölgaði þeim um 14,7% frá því í september í fyrra, en þá voru þeir 115 þúsund. Sætanýting félagsins í mánuðinum var 79% og hækkaði um 2,8 prósentustig frá fyrra ári.
Meira
Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is ICELANDAIR hefur skipt um þjónustuaðila á flugvöllunum í Osló, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn, eftir að hafa sagt upp samningum sínum við SAS.
Meira
VÍSITALA íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu, sem Fasteignamat ríkisins reiknar út, hækkaði um 0,9% frá fyrra mánuði. Undanfarna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3,7%, um 12,6% síðustu 6 mánuði og um 37% síðustu 12 mánuði. Í ágúst lækkaði vísitalan um 0,6%.
Meira
HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands í gær námu um 7,8 milljörðum króna , þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir um 1,6 milljarða. Mest viðskipti voru með bréf KB banka, um 758 milljónir króna.
Meira
HAGNAÐUR af rekstri Nýherja á þriðja ársfjórðungi nam 4,3 milljónum króna eftir skatta en var 36,3 milljónir króna á sama ársfjórðungi á síðasta ári.
Meira
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is ÍSLENSKA yfirtökunefndin gæti þurft að setja strangari viðmiðunarreglur en gilda í Bretlandi um það hvenær samstarf eða samvinna hluthafa í fyrirtæki sé þess eðlis að yfirtökuskylda skapist.
Meira
Því meira sem börn horfa á sjónvarp, því þyngri verða þau sem fullorðin, skv. breskri rannsókn sem greint er frá á vefnum WebMD. Þetta ætti ekki að koma á óvart en ekki er hægt að kenna krökkunum um allt saman.
Meira
Nemendur með sértæka námsörðugleika í unglingadeild Árbæjarskóla hafa undanfarin þrjú ár tekið þátt í skólaþróunarverkefni sem byggist á breyttu skipulagi til að stuðla að betri líðan og bættum námsárangri.
Meira
Breskur matur er ekki beint þekktur fyrir að vera besti maturinn í heiminum en Laila Sæunn Pétursdóttir segir að Bretar kunni að meta góðan mat og því sé úr mörgu að velja.
Meira
Eftir Kristínu Gunnarsdóttur krgu@mbl.is Þau eru þrettán í gönguhópnum, sem hittist þrisvar í viku, á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum og á sunnudagsmorgnum til að ganga saman.
Meira
Lágvöruverðsverslunin Krónan við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði opnaði í gær stækkaða búð. Flatarmál verslunarinnar er nú yfir fimm hundruð fermetrar og hefur verslunin því stækkað um nánast helming.
Meira
Sýnt hefur verið fram á með rannsóknum á mörg þúsund konum að líkurnar á að brjóstakrabbamein taki sig upp að nýju innan fjögurra ára eru 50% minni hjá þeim konum sem fá lyfið herceptin strax eftir skurðaðgerð og í tengslum við aðra meðferð en hjá þeim...
Meira
Allir deyjandi sjúklingar eiga að fá rétta umönnun við lífslok, að mati hjúkrunarfræðinganna Þóru Bjargar Þórhallsdóttur og Jo Wells, sem kynntu fyrir Íslendingum þær leiðir, sem Bretar hafa farið í þessum efnum. Jóhanna Ingvarsdóttir kynnti sér málið.
Meira
50 og 55 ÁRA afmæli. Í dag, laugardaginn 22. október, er fimmtugur Hörður Hákonarson, Hvassaleiti 20, Reykjavík . Kona hans, Margrét A. Frederiksen verður 55 ára í...
Meira
Brúðkaup | Gefin voru saman 3. september sl. í Kópavogskirkju, af föður brúðarinnar sr. Kjartani Erni Sigurbjörnssyni, þau Guðrún Birna Kjartansdóttir og Guðmundur Freyr Sveinsson . Með þeim á myndinni er sonur þeirra Kjartan...
Meira
Fræðslustund í Seltjarnarneskirkju MESSA kl. 11:00 í Seltjarnarneskirkju,. Auður Hafsteinsdóttir, bæjarlistamaður Seltjarnarness, leikur á fiðlu fallega tónlist, Kammerkór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng undir stjórn Pavel Manasek, organista.
Meira
Eggert Jóhannsson er fæddur í Reykjavík hinn 8. mars 1953. Hann lagði stund á sjómennsku eftir landspróf en fluttist til Lundúna í Englandi eftir tvö ár á sjó.
Meira
Víkverji þykist jafnréttissinni og er áfram um hlut kvenna í atvinnulífinu. Hann er út af fyrir sig ánægður með það framtak þeirra að halda baráttufund til að minna á rétt sinn.
Meira
"Ég vona að þessar hugmyndir mínar veki áhuga manna og hreyfi við umræðu um breyttar knattspyrnureglur, sem leiði til tilrauna á vormótum í framhaldinu. Mér er ljóst að forráðamenn FIFA lesa Moggann líklega ekki á degi hverjum, en einhvers staðar verður umræðan að byrja!"
Meira
* FYLKIR og Björgólfur Takefusa, sem hefur leikið knattspyrnu með Árbæjarliðinu, ákváðu í gær að slíta samstarfi. Fylkir þakkar Björgólfi samfylgdina og óskar honum alls hins besta í framtíðinni - í yfirlýsingu á heimasíðu sinni.
Meira
"ÞAÐ var gott fyrir sjálfstraustið í mínu liði að sjá að Danirnir náðu að leggja Slóvenana að velli og því er ég viss um að mínir menn eiga eftir að leggja sig alla í þennan leik og hafa fulla trú á að þeir geti borið sigur úr býtum," sagði...
Meira
Herrakvöld Fram Framarar halda herrakvöld sitt í nýju félagsheimili við Safamýri föstudaginn 11. nóvember. Sigurður Tómasson verður veislustjóri, Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra er ræðumaður kvöldsins og Jóhannes Kristjánsson fer með...
Meira
HÖRÐUR Sveinsson, framherji Keflvíkinga og ungmennalandsliðsins í knattspyrnu, fer eftir helgina til sænska liðsins AIK en félagið hefur boðið honum til reynslu.
Meira
MEÐ því að skipta upp um gír og síðan aftur náðu ÍR-ingar að stinga HK af þegar liðin mættust í Austurberginu í gærkvöldi. Það var samt ekki fyrr en leið á leikinn, þá small vörn ÍR saman sem skilaði strax hraðaupphlaupum og loks 37:29 sigri.
Meira
Tvö efstu lið DHL-deildarinnar í handbolta áttust við á Akureyri í gærkvöldi þegar Fram kom í heimsókn í KA-heimilið. Fyrir leikinn hafði Fram unnið alla sína leiki, en KA var búið að tapa sex stigum.
Meira
Leikir helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni: Laugardagur: Blackburn - Birmingham 11.45 Man. United - Tottenham 14 Fulham - Liverpool 14 Aston Villa - Wigan 14 Arsenal - Man. City 14 Portsmouth - Charlton 16.15 Sunnudagur: Newcastle - Sunderland 12.
Meira
THIERRY Henry, framherjinn frábæri hjá Arsenal, fær vafalaust hlýjar móttökur hjá stuðningsmönnum Arsenal í dag þegar liðið tekur á móti Manchester City.
Meira
EVRÓPUMEISTARAR Liverpool fá fyrirliða sinn til baka eftir meiðsli þegar liðið sækir Fulham heim á Creven Cottage í Lundúnum í dag. Gerrard meiddist í landsleik með Englendingum á dögunum og hefur verið frá í síðustu tveimur leikjum liðsins.
Meira
MAREL Baldvinsson knattspyrnumaður er genginn til liðs við sitt gamla félag, Breiðablik, á nýjan leik. Marel ritaði í gær nafn sinn undir þriggja ára samning við Kópavogsliðið sem vann sigur í 1.
Meira
ÓLAFUR Þórðarson, þjálfari karlaliðs ÍA í knattspyrnu, hélt í fyrradag til Þýskalands, nánar tiltekið til Dortmund, þar sem hann mun kynna sér þjálfunaraðferðir hjá 1. deildarliðinu Borussia Dortmund.
Meira
ROBERT Pires ætlar að fara sér hægt í samningaviðræðum sínum við Arsenal og segir Pires að hann ætli fyrst að sjá hvort forsvarsmenn félagsins ætli að leggja sitt af mörkum og styrkja liðið á næstu misserum Pires stendur til boða að framlengja samning...
Meira
DANINN Frank Arnesen tók til starfa hinn 1. september sl. hjá enska meistaraliðinu Chelsea en Arnesen hefur það hlutverk að finna hæfileikaríka knattspyrnumenn fyrir félagið og stjórna því hvernig þjálfun þeirra fer fram hjá yngri liðum Chelsea.
Meira
KIERAN Richardson hélt upp á 21 árs afmælisdag sinn í gær með því að skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við Manchester United - þannig að hann verður á Old Trafford til ársins 2009.
Meira
ROMAN Abramovich, eigandi Chelsea, segir við enska fjölmiðla í gær að markmið sitt og Chelsea sé mjög einfalt - að Chelsea verði besta félagslið í heimi.
Meira
PORTÚGALSKI landsliðsmaðurinn Cristiano Ronaldo mun fá tækifæri í liði Manchester United gegn Tottenham á Old Trafford í dag. Hann var færður til yfirheyrslu á miðvikudaginn vegna ákæru um nauðgun.
Meira
FRANSKI varnarmaðurinn Mikael Silvestre hjá enska úrvalsdeildarliðinu Manchester United segir að Chelsea hafi í sumar fengið leikmann sem jafnist á við Roy Keane, fyrirliða Manchester United.
Meira
DAVID Stern, framkvæmdastjóri NBA-deildarinnar, hefur fyrirskipað reglur um klæðaburð leikmanna fyrir og eftir leiki í NBA-deildinni í körfuknattleik.
Meira
"TVEGGJA mánaða dvöl við æfingar hjá Arsenal haustið 1968 varð kveikjan að því að ég varð stuðningsmaður Arsenal," segir Ástráður Gunnarsson, fulltrúi á rekstrarsviði Sparisjóðs Keflavíkur, sem fór ásamt Guðna Kjartanssyni til Lundúna haustið...
Meira
ÞAÐ eru þrjú mót eftir á bandarísku mótaröðinni í golfi, PGA-mótaröðinni, og Tiger Woods hefur enn möguleika á að því að slá met sem Vijay Singh frá Fijí setti í fyrra hvað varðar verðlaunafé en þar náði Singh að vinna sér inn 10.905.166 bandaríkjadali eða rétt rúmlega 60 milljónir króna.
Meira
ÞAÐ verður sannkallaður stórleikur á Old Trafford í dag þegar Manchester United, sem er í þriðja sæti deildarinnar, fær Tottenham í heimsókn en Lundúnaliðið hefur verið á miklu skriði að undanförnu og er í öðru sæti deildarinnar, stigi á undan United.
Meira
VONIR Tottenham Hotspur um að fá afnot af nýja ólympíuleikvanginum í London eftir leikana árið 2012 eru að engu orðnar. Skipuleggjendur leikanna hafa nú sagt að leikvangurinn verði fyrst og fremst notaður undir frjálsíþróttir eftir leikana.
Meira
ARSENE Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er ekki sáttur við landa sína sem stýra franska knattspyrnusambandinu. Wenger er argur yfir því að Frakkar hafa ákveðið að leika gegn Kosta Ríka í næsta mánuði og hafa kallað á Thierry Henry til þátttöku.
Meira
Nú getur þú búið til holla og góða bananafrostpinna. Allt sem þú þarft er: 6 bananar ½ bolli appelsínusafi ½ bolli muldar hnetur 1. Byrjaðu á því að fá leyfi hjá einhverjum fullorðnum á heimilinu. 2. Afhýddu bananana. 3.
Meira
V ið erum að leita að krökkum sem eru áhugasamir um bíómyndir, leikrit og bækur til að gagnrýna í Barnablaðinu. Ef þú ert á aldrinum 8-12 ára, hefur áhuga og telur þig geta skrifað góða gagnrýni sendu okkur þá tölvupóst á netfangið barn@mbl.is.
Meira
Bók: Syrpu-bækurnar um Andrés önd. Geisladiskur: If I had your love með Selmu. Bíómynd: Scooby Doo. Leikfang: Allt Spiderman-dót. Matur: Fiskur. Dýr: Tígrisdýr. Frægur: Örn...
Meira
1. Af hverju lítur bófinn aftur fyrir sig þegar löggan er að elta hann? 2. Veistu hvað litli broddgölturinn sagði þegar hann rakst á kaktusinn? 3. Hvað er það sem er grænt og hleypur eftir gangbrautinni? 4.
Meira
Sigga litla: Heldurðu, mamma, að það sé satt að litli bróðir hafi komið ofan af himnum? Mamma: Já auðvitað. Sigga litla: Ég skil það vel að englarnir þyldu ekki allan þennan hávaða. Kennarinn: Nú er reikningur. Nonni: Þá er ég ekki heima.
Meira
Seinni hluti: Nanda var fyrst og labbaði ansi rösklega en allt í einu varð gat í veginum sem þær höfðu ekki séð og Nanda hrapaði niður en náði að grípa í trjágrein sem hafði vaxið útúr veggnum og stelpurnar toguðu hana upp, síðan hoppuðu þær yfir og...
Meira
Hinn mikli töframaður Gúrilíus hefur dregið nokkra hluti upp úr hatti sínum. Prófaðu að horfa á þá í eina mínútu, lokaðu svo blaðinu og athugaðu hvað þú manst mikið. Þetta er fyrirtaks þjálfun fyrir...
Meira
Elín litla er hágrátandi af því að hún er búin að týna uppáhaldsdótinu sínu. Geturðu hjálpað henni að finna það? Hún er búin að týna bangsanum sínum, bílnum, dúkkunni, vagninum, boltanum, bókinni og...
Meira
Ég heiti Sara Sigurðardóttir og ég er nemandi í sjöunda bekk í Korpuskóla. Í skólanum mínum er lögð áheyrsla á sjálfstæði í námi, blöndun og samvinnu milli árganga. Tveir árgangar með ca.
Meira
Guð grætur... Það rignir, já hellirignir Guð grætur... Hann grætur út af flóðinu í Asíu, hann grætur út af fellibylnum í New Orleans, hann grætur út af sveltandi börnum í Afríku, Guð grætur...
Meira
Halló! Ég heiti Fríða og mig vantar pennavini á aldrinum 10-11 ára, helst stelpur! Ég hef áhuga á öllu milli himins og jarðar. Samt eru þau aðallega hestamennska, íslenski fjárhundurinn og söngur. Ég á tvo íslenska fjárhunda.
Meira
Í þessari viku eigið þið að leita að dýraheitum í þessari stóru orðaleit. Þegar þið hafið gert hring utan um öll dýraheitin þá eru 9 stafir eftir. Þessir stafir mynda svo lausnarorðið sem þið sendið okkur fyrir 29. október.
Meira
Margrét Eggertsdóttir varði doktorsritgerð sína föstudaginn 14. október sl. við hugvísindadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin nefnist Barokkmeistarinn. List og lærdómur í verkum Hallgríms Péturssonar.
Meira
#2 Við sátum á KFC-veitingahúsi unnusti minn og ég þegar hann dró hendina uppúr buxnavasanum, dró hendina mína til sín, snerti fingur mína lauslega, fingurnir mínir hafa lítið á móti því, og gaf mér demantshring, raunverulegan demantshring.
Meira
Nýjasta kvikmyndin um ævintýri Harrys Potters verður skelfilegri en fyrri myndinar um galdrastrákinn og því hefur verið ákveðið að hækka aldurstakmark á myndina í Bretlandi og í Bandaríkjunum.
Meira
Kanadíska rokksveitin Hot Hot Heat, sem nú sér um að hita upp fyrir Foo Fighters og Weezer á tónleikum, byrjar sína eigin hljómleikaferð um Bandaríkin í byrjun næsta mánaðar.
Meira
Norðmenn hafa aldrei vitað hvað þeir eiga að gera við Edvard Munch. Hann gaf þeim listaverkin sín en það tók nítján ár að byggja yfir verkin sem síðan hefur verið stolið trekk í trekk.
Meira
! Fyrir þrjátíu árum varð loks að veruleika framúrstefnuleg hugmynd rauðsokkakvenna um að allar íslenskar konur legðu niður vinnu einn dag til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags þeirra.
Meira
Iceland Airwaves-hátíðin er nú í beljandi gangi og tónvænar loftbylgjur hafa flætt greiðlega um miðbæinn síðan á fimmtudaginn. Tugir tónlistarmanna, innlendir sem erlendir, hafa nú dýrkað tónlistargyðjuna og í kvöld slæst Brooklyndúettinn Ratatat í hópinn.
Meira
Á aðeins tveimur vikum er gula húsið í Hafnarfirði orðið þekkt kennileiti í íslenskri samtímamenningu. Húsið er skurðpunktur illsku og þagnar í smábæjarsamfélagi síðustu aldar.
Meira
Dagurinn opnar augun og yrðir á mig sjáumst stutta stund á milli stríða það er hrakviðraspá opinn glugginn ýlir í strá hámar í sig húsþakið haustregnið drukknar sumarsól í soltnu hafi.
Meira
Ég er með höbb í vinnunni. Fyrir nokkrum árum vissi ég ekki einu sinni að það væri til neitt sem heitir höbb. Í unglingadrykkjunni í fyrradag lærði ég orðið flepp. Það mun vera flipp svo flippað að það getur ekki einu sinni kallast sínu rétta nafni.
Meira
Fyrir mörgum árum, þegar ég var ungur drengur með mikla tónlistardellu (sem er ekkert í rénu), fékk ég að hirða nokkrar gamlar íslenskar plötur sem henda átti.
Meira
Á kvikmyndahátíð sem stóð yfir fyrr á árinu kom óháði kvikmyndagerðarmaðurinn Lloyd Kaufman til landsins og sýndi nokkrar myndir frá kvikmyndaverinu Troma.
Meira
Uppruni tegundanna eftir Charles Darwin kom út í íslenskri þýðingu á síðasta ári. Í tilefni af því fjallar greinarhöfundur um kenningu Darwins og áhrif hennar í fjórum greinum sem munu birtast í Lesbók næstu vikur.
Meira
Á Lesbókarþingi fyrir rúmri viku um menningu og samfélag var hart deilt á Landsvirkjun fyrir samkeppni um listaverk við Kárahnjúkavirkjun. Greinarhöfundur sat í pallborði á þinginu og varðist en hér tekur hann upp nokkra þræði umræðunnar og rekur áfram.
Meira
Karen Duve, þýskur rithöfundur og gestur Bókmenntahátíðar í Reykjavík 2005, nálgast skáldlegan veruleik gjarnan út frá hörkulegu sjónarhorni þar sem ofbeldi og óheft kynlífsárátta leikur lausum hala. Ísland á sér stað í nýjustu skáldsögu Duve Brottnumdu prinsessunni .
Meira
Í dag flytur Haukur Ingi Jónasson sálgreinir fjórða fyrirlesturinn í fyrirlestraröðinni "Veit efnið af andanum? Af manni og meðvitund." Haukur Ingi mun fjalla um meðvitundina út frá hugmyndum og hugtökum sálgreiningarinnar.
Meira
Af hverju lætur almáttugur guð saklaust og gott fólk þjást? Þetta er spurningin sem leikritið Ausan glímir við að mati greinarhöfundar en verkið var sýnt í Borgarleikhúsinu og ferðast nú milli kirkna landsins.
Meira
Fjórar myndir verða sýndar á kvikmyndahátíð í Háskólabíói í dag sem tileinkuð er myndum sem tilnefndar voru til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.