Hvort sem úrkoman fer að slaka á eða ekki þá virðist hvítvínið seljast í auknu mæli með hækkandi hitastigi. Matarvefurinn hafði samband við Vínbúðina og forvitnast um mest seldu vínin. Það kemur skemmtilega á óvart að sjá að vinsælasta flaskan er á góðu verði og bragðgóð ef marka má vinsældir hennar.
Hlutfallslega virðist hvítvín á vinsældalistanum vera mun ódýrara en vinsælasta vín listans er á 1.999 krónur en á rauðvínslistanum fer flaskan upp í 2.699 krónur.
Nr 1. Barefoot Pinot Grigio
Verð: 1.599 krónur
Lýsing: Fölgult. Létt fylling, ósætt, fersk sýra. Sítrus, epli.
Nr 2. Van Gogh Riesling
Lýsing: Fölsítrónugult. Létt meðalfylling, hálfsætt, fersk sýra. Epli, apríkósa, ljós ávöxtur.
Verð: 1.599 krónur. (Hefur lækkað frá því að Matarvefurinn fékk listann sendan.)