Þessi pítsa er svo auðveld og snjöll að hún á pottþétt eftir að slá í gegn á heimilium landsmanna sem þurfa eitthvað bragðgott til að hugga sig við.
Hér þarf bara eitt stykki steypujárnspönnu en það er í sjálfu sér ekki nauðsynlegt enda er þetta bara ofnbökuð pítsa með Nutella og almennri hamingju.
Það er Linda Ben sem á heiðurinn að uppskriftinni sem er ekki amaleg.
Nutella-pönnupizza með ís
- Tilbúið pizzadeig
- 2-3 msk. Nutella
- u.þ.b. 10 kirsuber (magn fer eftir smekk)
- u.þ.b. 12-15 brómber (magn fer eftir smekk)
- u.þ.b. 1 dl bláber (magn fer eftir smekk)
- Nokkur lauf fersk mynta (magn fer eftir smekk)
- Vanillurjómaís (magn fer eftir smekk)
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 220°C.
- Setjið um það bil 1 msk. af olíu í 30 cm steypujárnspönnu og smyrjið pönnuna vel að innan.
- Setjið pizzadeigið ofan í pönnuna og teygið pizzadeigið vel ofan í svo það þeki út í alla kanta pönnunnar. Setjið pönnuna inn í ofninn og bakið deigið í um það bil 15 mín. eða þar til botninn er orðinn fallega gullinbrúnn.
- Á meðan pizzan er í ofninum, skolið berin, skerið kirsuberin í tvennt og fjarlægjið steininn.
- Takið pizzuna út úr ofninum, leyfið henni að kólna í um það bil 3-5 mín., smyrjið hana með Nutella, skreytið með berjum, myntulaufum og ís.