Heyrst hefur að Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, ætli að leika í tveimur framhaldsmyndum. Kvikmyndirnar tvær eru að sögn fjórða Tortímandamyndin og framhald kvikmyndarinnar True Lies.
Leikstjóri beggja myndanna er hinn þekkti James Cameron sem leikstýrði meðal annars True Lies hinni fyrri. Hefur fréttavefurinn Ananova það eftir ungri leikkonu sem á að leika dóttur Schwarzenegger í True Lies 2 að leikarar fyrri myndarinnar hafi hist og rætt málin fyrir mánuði síðan.