Diaz og Timberlake sögð hafa átt í hvössum orðaskiptum eftir verðlaunahátíð

Cameron Diaz á Golden Globe hátíðinni.
Cameron Diaz á Golden Globe hátíðinni. AP

Leikkonan Cameron Diaz og fyrrverandi kærasti hennar, popparinn Justin Timberlake, áttu í hvössum orðaskiptum í eftirpartíi sem var haldið eftir Golden Globe-verðlaunahátíðina í Los Angeles. Frá þessu greinir bandaríska slúðurpressan.

Viku eftir að parið greindi opinberlega frá því að þau væru ekki lengur saman lentu Diaz og Timberlake í rifrildi teiti sem tónlistarmaðurinn Prince hélt á Beverly Wiltshire hótelinu eftir Golden Globe verðlaunahátíðina.

Þrátt fyrir að sést hafi til þeirra ræða kurteisislega saman við sjálfa athöfnina, og jafnvel grínast í eftirpartíi InStyle tímaritsins, er Diaz sögð hafa truflað samræður kærastans fyrrverandi við leikkonuna Jessicu Biel í veislu Prince. Í kjölfarið braust út rifrildi milli þeirra skötuhjúa sem stóð í rúmar 40 mínútur í einu hliðarherbergja hótelsins, að því er segir í bandaríska slúðurblaðinu People.

Justin Timberlake.
Justin Timberlake. AP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg