Hvalveiðibanni aflétt?

Hvalveiðar í atvinnuskyni verða líklega aftur leyfðar, en hvalveiðikvótar takmarkaðir.
Hvalveiðar í atvinnuskyni verða líklega aftur leyfðar, en hvalveiðikvótar takmarkaðir. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Banni á hvalveiðum í atvinnuskyni, sem sett var fyrir 24 árum, kann að verða aflétt í lok ársins. Hvalveiðiþjóðir munu þá geta veitt takmarkaðan fjölda hvala, samkvæmt drögum að tillögum sem Alþjóðahvalveiðiráðið (IWC) hefur sett á vefsíðu sína.

Hugmyndin er sú að leyfa takmarkaðar hvalveiðar en jafnframt að draga með því úr fjölda þeirra hvala sem veiddur er á hverju ári, svo sem í vísindaveiðum.  Japanir, Norðmenn og Íslendingar veiða hvali og hafa m.a. gert það í vísindaskyni á undanförnum árum.

Margir erlendir fjölmiðlar fjalla um þennan viðsnúning hvalveiðiráðsins. Samkvæmt drögum að áætlun Alþjóðahvalveiðiráðsins verða vísindaveiðar á hvölum settar undir stjórn hvalveiðiráðsins.

Fréttavefurinn Times Online segir að sú málamiðlun að leyfa takmarkaðar hvalveiðar sé gerð í þeirri von að leysa Alþjóðahvalveiðiráðið úr þeirri klemmu sem verið hefur á milli hvalveiðiþjóða og þjóða sem andvígar eru hvalveiðum. Með því megi bjarga Alþjóðahvalveiðiráðinu frá því að leysast upp en í því eiga 88 þjóðir sæti.

Drögin að þessum tillögum hafa verið í smíðum á bakvið luktar dyr í meira en ár. Þótt í þeim sé lagt til að leyfa takmarkaðar hvalveiðar á tíu ára tímabili er eftir að ákveða hvalveiðikvóta. 

Tillaga verður  rædd á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Marokkó í núní næstkomandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert