Hægt verður að halda upp á hrekkjavöku í bænum Barret Township í kvöld eftir að meinti morðinginn Eric Frein var handtekinn í gærkvöldi. Frein hafði verið á flótta frá lögreglu í næstum því sjö vikur og valdið miklum ótta í Austur-Pennsylvaníuríki á meðan hann gekk laus.
Óttinn var það mikill að í bænum Barret Township hafði hrekkjavökunni verið aflýst, en bærinn er aðeins 16 kílómetrum frá Blooming Grove, þar sem talið er að Frein hafi skotið lögreglumann til bana.
Fyrr í mánuðinum var því lýst yfir að öllum viðburðum tengdum hrekkjavöku yrði aflýst í bænum á meðan Frein gengi enn laus. En þar sem hann var handtekinn í gærkvöldi verður haldið upp á hátíðina í kvöld, mörgum eflaust til gleði.
„Enginn lögreglumaður slasaðist, enginn annar slasaðist. Honum tókst ekki að taka fleiri líf og skaut engan annan svo ég viti. Þetta er það besta sem gæti hafa gerst,“ sagði Megliola.
Á veitingastaðnum Pour House í Barrett Township fagnaði fólk í gærkvöldi. „Við erum svo spennt,“ sagði Annie Grill í samtali vð NBC á veitingastaðnum. „Við bara urðum að fara út í kvöld.“
Elisabeth Pipolo, meðeigandi veitingastaðarins, var ánægð með að fá viðskiptavini, en lítið hefur verið að gera á veitingastaðnum síðan leitin að Frein hófst fyrir sjö vikum. Meðan á henni stóð heyrðist stöðugt í þyrlum og lögreglumenn leituðu Freins á heimilum fólks.
Frein var handtekinn í gærkvöldi í flugskýli. Hann verður ákærður fyrir að hafa myrt lögreglumann og sært annan lífshættulega er hann hóf skotárás á lögreglustöð 12. september.
Farið verður fram á dauðarefsingu yfir honum fyrir morðið.