Allt bendir til þess að sjö af börnunum átta sem fundust látin á heimili í úthverfi borgarinnar Cairns í Queensland í Ástralíu í nótt séu systkini. Áttunda barnið er skylt þeim. Lögreglan biður alla þá sem hefur verið í sambandi við fjölskylduna undanfarna daga að hafa samband. Móðir barnanna sjö, sem er 34 ára gömul, var flutt á sjúkrahús með stungusár en lögregla verst allra frétta um hvernig börnin voru myrt og hvort einhver liggi undir grun um ódæðið. Börnin átta voru á aldrinum átján mánaða til fimmtán ára.
Forsætisráðherra Ástralíu, Tony Abbott, segir harmleikinn í Cairns átakanlegan en á sama tíma ríkir þjóðarsorg í Ástralíu vegna gíslatökunnar í Sydney á mánudag. Hann segir morðin í Cairns ólýsanlegan glæp.
Ungur maður, í einhverjum fjölmiðlum er hann sagður tvítugur bróðir barnanna sjö, hringdi í lögreglu eftir að hafa komið heim og fundið börnin látin. Lögreglan hefur ekki staðfest þetta en segir að það sé verið að ræða við tvítugan mann sem kom á vettvang þennan morgun sem börnin fundust látin.
„Við erum ekki að fara að nafngreina grunaða né heldur að veita upplýsingar um grunaða á þessum tímapunkti,“ segir yfirmaður lögreglunnar Bruno Asnicar.
Í gær var maður dæmdur í lífstíðarfangelsi í Melbourne fyrir að hafa kæft tvær dætur sínar, 3. og fjögurra ára gamlar. Að sögn dómarans vildi maðurinn hefna sín á fyrrverandi eiginkonu og barnsmóður.
Að sögn fréttamanns Cairns Post búa fjölmargir frumbyggjar í hverfinu og allir þeir sem búi í þessari götu séu tengdir blóðböndum á einhvern hátt. Hann segir að allir íbúar götunnar séu niðurbrotnir og þeir segi að móðirin hafi verið mjög stolt af börnum sínum og elskað þau mikið.