Franskar björgunarsveitir sem unnið hafa á slysstaðnum þar sem þota Germanwings brotlenti, eru nú í óða önn að leggja veg að slysstaðnum. Á það að flýta fyrir öllum samgöngum á svæðinu.
Þotan brotlenti í fjalllendi sem er afar torfarið. Nauðsynlegt er að samgöngur séu í lagi svo hægt sé að flytja leitarmenn, heilbrigðisstarfsmenn og vísindamenn á svæðið með sem minnstri fyrirhöfn.
Rannsóknardeild lögreglunnar hefur nú þegar fundið sýni úr 78 farþegum og hefur verið borið kennsl á þá. Allir 150 farþegarnir í vélinni létu lífið. Starf rannsóknarmanna er erfitt því lítið er eftir af þotunni þar sem hún lenti á kletti á 700 km/klst. hraða. Er búið að finna á milli fjögur og sex hundruð líkamsparta sem verið er að bera kennsl á og liggja þeir dreifðir um gríðarlega stórt svæði.
„Ekki hefur ennþá fundist líkamspartur eða líffæri sem er í heilu lagi,“ segir Patrick Touron hjá frönsku lögreglunni í samtali við The Guardian.
Sjá frétt Politiken