Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði Bandaríkjaþingi hafa orðið á mikil mistök með því að þrýsta í gegn frumvarpi sem heimilar lög sem eiga að koma í veg fyrir að ríki njóti friðhelgi í þeim tilfellum þar sem þau eru ábyrg fyrir hryðjuverkaárásum sem leiða til dauða bandarískra ríkisborgara á bandarískri grund.
Obama sagði frumvarpið veita „hættulegt fordæmi“ fyrir einstaklinga víða um heim að höfða mál gegn bandarískum stjórnvöldum.
Atkvæðagreiðslan í gær var sú fyrsta í átta ára forsetatíð Obama sem þingheimur hafnar ógildingu hans.
Frétt mbl.is: Þingið snýst gegn Obama
John Brennan, yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA, tók í sama streng og Obama og sagði frumvarpið geta falið í sér „alvarlegar afleiðingar“ fyrir öryggi bandarísku þjóðarinnar. „Annmarkarnir eru verulegir,“ hefur fréttavefur BBC eftir Brennan.
Frumvarpið mun gera ættingjum fórnarlamba árásarinnar 9. september 2001 kleift að fara í mál við Sádí-Arabíu sem tengd hafa verið við hryðjuverkin, þar sem tæplega 3.000 manns létu lífið. 15 þeirra 19 sem stóðu að árásunum voru sádí-arabískir ríkisborgarar. Stjórnvöld í landinu, sem hefur lengi verið bandamaður Bandaríkjanna, hafna hins vegar alfarið ábyrgð.
„Þetta er hættulegt fordæmi og dæmi um það hvers vegna maður verður stundum að taka erfiðar ákvarðanir,“ sagði Obama í viðtali við CNN. „Og satt best að segja þá óska ég þess að þingið hefði tekið þessa erfiðu ákvörðun.“ Obama sagði þá afstöðu sína hafa ekkert með Sádí-Arabíu að gera, né samúð hans með fjölskyldum fórnarlamba árásanna 11. september.
„Hún hefur allt með það að gera að mig langar ekki til að sjá fram á aðstæður þar sem við eru skyndilega berskjölduð fyrir lögsóknum vegna hernaðar okkar víða um heim.“
Fréttavefur BBC segir fjölskyldur fórnarlambanna og lögfræðinga þeirra hafa hafnað þessum rökum.
„Við gleðjumst yfir þessum sigri og hlökkum til að mæta í réttarsal og þess tíma þegar við getum loksins fengið frekari svör um það hver stóð raunverulega að árásunum,“ sagði Terry Strada, sem fer fyrir samtökum fjölskyldna fórnarlambanna og þeirra sem krefjast réttlætis gegn hryðjuverkum.
Obama telur atkvæði þingmannanna endurspegla áhyggjur þeirra af því að það komi illa út að greiða atkvæði gegn fjölskyldum fórnarlambanna svo skömmu fyrir kosningar.
Öldungadeildin kaus með ógildingu neitunarinnar með 97 atkvæðum á móti 1 og í fulltrúadeildinnni féllu atkvæði 348 á móti 77 atkvæðum.
Josh Earnest, talsmaður Hvíta hússins sagði atkvæðagreiðsluna, vera það „alvandræðalegasta sem Bandaríkjaþing hafi gert“ í áratugi.