Alls voru 2.318 flóttamenn fluttir úr flóttamannabúðunum í Calais í Frakklandi í dag, að sögn Bernarnd Cazeneuve, innanríkisráðherra Frakklands.
Frétt mbl.is: Byrjað að rýma flóttamannabúðirnar
Flóttamannabúðirnar eru í daglegu tali kallaðar Jungle, eða Frumskógurinn. Um 7.000 manns hafa búið þar við ömurlegar aðstæður.
Úr þessum hópi fóru „1.918 fullorðnir frá Calais um borð í 45 rútur og til 80 móttökustaða og annarra staða í 11 héruðum Frakklands,“ sagði Cazaneuve.
Fjögur hundruð börn hafa einnig verið flutt á móttökustaði innan „Frumskógarins“ þar sem þau fá viðeigandi aðstoð áður en þau verða flutt á nýjan stað.