Gíslarnir sjö sem voru í haldi vopnaðs ræningja inni á ferðaskrifstofu í París eru lausir úr haldi og heilir á húfi. Ræninginn er á flótta undan lögreglunni, samkvæmt AFP-fréttastofunni.
Maðurinn hafði ógnað fólki með byssu. Lögreglan umkringdi svæðið og ráðlagði ökumönnum að halda sig fjarri.
Ferðaskrifstofan er við Massena-breiðgötuna sem er í suðurhluta borgarinnar.
Frétt mbl.is: Heldur fólki í gíslingu í París