Er breska konungsfjölskyldan kannski ekkert svo ólík öllum öðrum? Bregða þau líka á leik í fyndnum og fáránlegum jólapeysum, rétt eins og við hin? Ekki ber á öðru á þessari mynd. En henni skal þó taka með fyrirvara. Hér er ekki á ferðinni hin raunverulega konungsfjölskylda heldur vaxmyndir af henni.
Vaxmyndasafn Madame Tussaud í London hefur nú afhjúpað jólaklæðnað konungsfjölskyldunnar í safninu. Allt er þetta gert fyrir gott málefni í samstarfi við mannúðarsamtökin Save The Children. Til að klæða mætti fjölskylduna í þessi föt þurfti að fá leyfi hennar. Það var auðfengið, að því er fram kemur í frétt Huffington Post.
Árlegur jólapeysudagur Save The Children er 16. desember næstkomandi. Sá dagur er einnig haldinn hátíðlegur hér á landi. Er honum ætlað að safna peningum fyrir fátæk börn.
A photo posted by Madame Tussauds London (@madametussauds) on Dec 6, 2016 at 9:38am PST