Karlmaður á eyjunni Phuket á Taílandi tók upp myndskeið og birti á Facebook þegar hann drap drap sjálfan sig og barn sitt. Lögregla í landinu segir atburðinn þann nýjasta í röð þar sem samfélagsmiðlar eru notaðir til að sýna viðbjóðslega glæpi.
Lögreglumenn á eyjunni fengu ábendingu frá vini mannsins og flýttu sér á yfirgefið hótel síðdegis í gær, þar sem maðurinn fannst ásamt dóttur sinni.
„Þau voru dáin þegar ég kom þangað,“ sagði lögreglumaðurinn Jullaus Suvannin í samtali við AFP en hann var einn af fyrstu mönnum á vettvang.
Lögregla telur að maðurinn hafi áður deilt við barnsmóður sína en dóttir þeirra var 11 mánaða gömul. Maðurinn hengdi sig og dóttur sína.
Sjónvarpsstöðin Channel 3 birti myndskeið af móðurinni í mikilli geðshræringu þar sem hún bar kennsl á lík dóttur sinnar og mannsins á spítala í morgun.
Stutt er síðan Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, hét því að samfélagsmiðillinn yrði ekki notaður til að dreifa myndskeiðum af morðum. Þá vottaði hann einnig samúð sína fjölskyldu manns sem myrtur var og morð hans síðan birt á samfélagsmiðlinum.
Ríkisstjórinn í Phuket hvatti fólk til að deila ekki fjögurra mínútna myndskeiði af morðinu og sjálfsmorðinu.