Að minnsta kosti átta borgarar létu lífið, þar af fjögur börn, í loftárás Sýrlandshers á Ghuouta sem er svæði utan við höfuðborgina Damaskus í Sýrlandi þrátt fyrir að vopnahléi hafi verið lýst yfir síðastliðinn laugardag. Um 30 manns eru særðir eftir árásina.
Árásin var gerð á borgina Arbin í austurhluta Ghouta í gærkvöld. Stjórnarher Bashar al-Assad Sýrlandsforseta hefur setið um Ghouta í fjögur ár og ítrekað gert þar árásir.
Sýrlandsher hefur ekki staðið við vopnahléið því að minnsta kosti sex árásir voru gerðar á sunnudaginn, bæði úr lofti og á jörðu, víða á svæðinu.
Herþotur Sýrlandshers eða bandamanna þeirra, Rússar, bera ábyrgð á árásunum, að sögn Rami Abdel Rahman, talsmanns mannréttindasamtaka í Sýrlandi. Þetta er í annað sinn sem umsamið vopnahlé á þessu svæði er brotið.