Skömmu áður en hin ástralska Justine Damond var skotin til bana af lögreglumanni sló kona aftan í lögreglubílinn. Rannsakendur málsins hafa ekki gefið upp hvort það hafi verið Damond sem sló í bílinn.
Fram hefur komið að lögreglumanninum hafi brugðið við háan hvell skömmu áður en Damond kom að lögreglubílnum. Eru þessar upplýsingar sagðar varpa ljósi á hvaðan hvellurinn kom, að því er fram kemur í frétt BBC.
Damond, sem var áströlsk en búsett í Bandaríkjunum, hafði hringt í lögreglu til að tilkynna mögulega kynferðisárás. Hún var skotin til bana af lögreglumanninum Mohammed Noor er hún kom upp að lögreglubílnum.
Damond var ekki vopnuð. Noor skaut hana frá farþegasæti lögreglubílsins, í gegnum glugga ökumanns bifreiðarinnar. Ekki var kveikt á öryggismyndavélum lögreglumannanna þegar atvikið átti sér stað.
Noor hefur enn ekki verið yfirheyrður vegna málsins. Yfirvöld rannsaka nú hvers vegna Damond var skotin.
Janee Harteau, lögreglustjóri í Minnesota-ríki, hefur sagt af sér í kjölfar málsins. Sagði hún eftir að málið komst í fréttir að atvikið hefði ekki átt að gerast. Borgarstjóri Minneapolis hefur fallist á uppsögn hennar. Hann segist ekki lengur hafa borið traust til lögreglustjórans.