Hollenska lögreglan hefur handtekið 22 ára gamlan mann í tengslum við rannsókn á fyrirhuguðu hryðjuverki í Rotterdam í gærkvöldi.
Lögreglan aflýsti tónleikum í borginni eftir að hafa fengið ábendingu um mögulega árás frá starfsbræðrum sínum á Spáni. Maðurinn var handtekinn í Brabant í nótt, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni. Bílstjóri sendibíls, sem var handtekinn í Rotterdam í gær með fullan bíl af gaskútum, er enn í haldi lögreglu.
Tónleikar bandarísku hljómsveitarinnar Allah-Las áttu að fara fram í Maassilo-klúbbnum í Rotterdam en nokkru áður lét lögreglan aflýsa þeim vegna hryðjuverkaógnar.
Um svipað leyti var spænskur bílstjóri handtekinn í borginni í tengslum við málið. Að sögn lögreglu var hann handtekinn vegna ölvunar.
Í viðtali við Guardian í fyrra greindu félagar í Allah-Las frá því að þeir fengju oft hótunarbréf frá múslimum sem væru ósáttir við að þeir notuðu orðið Allah - sem þýðir Guð á arabísku - sem heiti hljómsveitarinnar. Þeir segja nafnið hins vegar þannig tilkomið að þá hafi langað í trúarskírskotun vegna áhrifa frá tónlist hljómsveitarinnar Jesus and Mary Chain.