Xi Jinping, forseti Kína, sparaði ekki stóru orðinn er hann lýsti framtíðarsýn sinni á kínverskt samfélag og hlutverk þess í alþjóðasamfélaginu á flokksþingi kínverska Kommúnistaflokksins sem hófst í morgun. Lagði Xi áherslu á að útrýma spillingu og hindra offramleiðslu, launamun og mengun.
Hét hann því þá að byggja upp „nútíma sósíalistaríki“ fyrir „nýja tíma“ sem verði kínverskir og stjórnað styrkri hendi af flokkinum, en sem verði jafnframt opnir umheiminum. Kína bíði „stórt hlutverk“ í mannkynssögunni.
Þó að Xi færi um víðan völl í þriggja og hálfstíma ræðu sinni kom þar skýrt fram að engar hugmyndir væru uppi um pólitískar umbætur.
„Eftir áratuga erfiðisvinnu þá eru nýir tímar í kínverskum sósíalisma,“ sagði Xi sem notaði frasann „nýja tíma“ 36 sinnum í ræðu sinni.
„Nú er komið að okkur að verða miðpunktur athyglinnar og leggja okkar að mörkum fyrir mannkynið.“
Reuters segir líkt og búist hafi verið við þá hafi verið lítið um útlistun aðgerða en þeim mun meira um hástemmd loforð í ræðu Xi.
Flokksþingið er haldið á fimm ára fresti og fer að mestu fram fyrir luktum dyrum, en einn af hápunktum þess verður kosning 2.287 fulltrúa á þinginu á 205 manna miðstjórn, sem velur síðan 25 menn í stjórnmálaráð flokksins og sjö manna fastanefnd þess. Þessir sjö menn verða þeir valdamestu í Kína næstu fimm árin og gert er ráð fyrir því að þeir verði kynntir á flokksþinginu.
Sumir stjórnmálaskýrendur spá því að Xi noti flokksþingið til að styrkja stöðu sína nógu mikið til að hann geti haldið völdunum eftir að öðru kjörtímabili hans lýkur árið 2022. Xi er af mörgum talinn valdamesti leiðtogi Kína frá því Mao Zedong var og hét.
Þegar Xi komst til valda fyrir fimm árum hét hann því að koma á markaðsumbótum og auka svigrúm einkafyrirtækja í Kína. Hann íhugaði jafnvel að leysa upp stofnun sem hefur umsjón og eftirlit með stærstu ríkisfyrirtækjum landsins, skipar til að mynda forstjóra þeirra.
Þróunin hefur hins vegar verið þveröfug í Kína síðustu árin. Miðstýringin hefur verið aukin í efnahagnum, þrengt hefur verið að einkafyrirtækjum, stóru ríkisfyrirtækin hafa stækkað og stjórnin hefur aukið völd stofnunarinnar sem Xi íhugaði að leggja niður. Á sama tíma hafa skuldir ríkisins aukist verulega og hagvöxtur minnkað.
Þá er ritskoðun nú beitt í auknum mæli og handtökum lögfræðinga og mannréttindasinna hefur sömuleiðis fjölgað.
Xi er mun ákveðnari leiðtogi en forverar hans og í ræðu sinni horfði hann yfir fimm ára forsetatíð sína og sagði flokkinn hafa unnið kraftaverk og að staða Kína í alþjóðasamfélaginu hafi styrkst.
Hann sagði ennfremur Kína ekki hafa hug á að herma eftir stjórnkerfum annarra ríkja og að Kommúnistaflokkurinn muni berjast gegn öllu sem grafi undan stjórn hans. Í því skyni verði flokksagi aukinn, sagði Xi og minnti á herferð sína gegn spillingu sem hefur náð til milljóna kínverskra ríkisstarfsmanna.