Akayed Ullah, maðurinn sem stóð fyrir sprengjutilræði við Port Authority samgöngumiðstöðinni í New York á mánudaginn síðastliðinn, aðhylltist öfgafullum skoðunum eftir að hann flutti til Bandaríkjanna. Lögreglan í Bangladess segir hann hafa meðal annars lesið verk eftir eldklerkinn Jashim Uddin Rahmani sem tengist íslömskum öfgasamtökum.
Lögreglan í Bangladess hefur þessar upplýsingar frá eiginkonu hans sem býr í borginni Dhaka í Bangaldess. Hún og fjölskylda hennar hefur verið yfirheyrð eftir tilræðið. Ullah kom reglulega til Bangladess þar sem eiginkona hans og barn búa eftir að hann flutti til Bandaríkjanna árið 2011. Hann hafi jafnframt hvatt konu sína til að lesa efnið sem hún hafi ekki gert.
Ullah er alvarlega slasaður eftir tilræðið, en hann var með heimatilbúið sprengjuvesti vafið um sig. Þrír aðrir særðust i tilræðinu sem átti sér stað á háannatíma. Hann hefur verið ákærður fyrir vopnaeign, fyrir stuðning við hryðjuverkasamtök og fyrir hryðjuverkaógn.
Rahmani hlaut fimm ára fangelsi fyrir að hvetja til morðs á bloggara árið 2013. Tveir menn sem frömdu morðið voru dæmdir í fangelsi. Bækur Rahmani eru talsvert útbreiddar á netinu og íslamistar lesa þær mikið í Bangaldess.