Donald Trump Bandaríkjaforseti styður tilraunir til að bæta eftirlit og bakgrunnsskoðanir á fólki sem kaupir byssur, að því er BBC hefur eftir fjölmiðlafulltrúa Hvíta hússins, Söruh Sanders.
Sanders segir forsetann hafa rætt við John Cornyn, öldungadeildaþingmann Repúblikanaflokksins, um frumvarp sem hann átti þátt í að leggja fram.
Frumvarpinu, sem var lagt fram í fyrra, var ætlað að bæta eftirlit og þær bakgrunnsskoðanir sem gerðar eru áður en einstaklingi er heimilað að kaupa skotvopn.
Tilkynning forsetans kemur eftir að yfirvöld greindu frá því að Nicholas Cruz, sem myrti 17 nemendur á Flórída í síðustu viku, hefði eignast byssu sína með löglegum hætti.
„Viðræður eru í gangi og verið er að íhuga endurskoðun og forsetinn er hlynntur aðgerðum til að bæta bakgrunnskoðanir alríkislögreglunnar (FBI),“ sagði Sanders.
Núverandi athugunarkerfi byggir á því að lögreglumenn, hjá bæði alríkislögreglunni og hverju ríki fyrir sig, skrái í grunninn upplýsingar um sakfellingu og andlega heilsu einstaklinga, sem síðar gætu stöðvað skotvopnakaup viðkomandi.
Mikil brotalöm er hins vegar á þessu og vakti mikla athygli á síðasta ári er bandaríski flugherinn viðurkenndi að gleymst hefði að skrá ofbeldisdóm manns sem skaut 26 manns til bana í kirkju í Sutherland Springs í Texas.
Það var eftir þá skotárás sem Cornyn og öldungadeildarþingmaðurinn og demókratinn, Chris Murphy, lögðu fram frumvarp sitt.
BBC segir viðhorf Trumps til skotvopnalöggjafarinnar hafa tekið nokkrum breytingum, en í framboðsbaráttunni lagði hann áherslu á andúð sína á hertri skotvopnalöggjöf.
Þá sagði forsetinn á ráðstefnu Samtaka byssueigenda í Bandaríkjunum (NRA) að hann muni aldrei setja hömlur á þau stjórnarskrárbundnu réttindi Bandaríkjamanna að eiga og bera skotvopn.
Trump hefur þegar kennt FBI og andlegri heilsu Cruz um árásina á nemendurna, en hann hefur ekki enn tjáð sig um kröfur nemendanna sem fyrir árásinni urðu um herta byssulöggjöf.