Meira en 150 þúsund óbreyttir borgarar hafa flúið Afrin-borg í norðurhluta Sýrlands síðan á miðvikudagskvöld. Fólkið hefur flúið árásir Tyrklandshers, sem ræðst gegn Kúrdum á svæðinu.
„Það voru harðir bardgar í nótt í útjarði borgarinnar þar sem tyrkneskar hersveitir og bandamenn þeirra úr hópi uppreisnarmanna í Sýrlandi reyndu að brjótast inn í borgina,“ sagði talsmaður Syrian Observatory for Human Rights í morgun.
Tyrkneski herinn hefur þegar náð yfirráðum yfir mörgum bæjum og þorpum í Afrin-héraði en þar barðist Haukur Hilmarsson við hlið Varnarsveita Kúrda (YPG) og er sagður hafa fallið í árás Tyrkja þann 24. febrúar.
„Óbreyttir borgarar flýja til suðurs,“ sagði Rami Adbel Rahman hjá sýrlensku mannréttindasamtökunum Syrian Observatory for Human Rights en leiðin til suðurs er eina leiðin fyrir fólk til að flýja.