Keith O'Brien, fyrrverandi kardínáli og æðsti yfirmaður kaþólsku kirkjunnar í Skotlandi, sem sagði af sér vegna kynferðisbrota er látinn 80 ára að aldri. Hann lést skömmu eftir að hafa dottið og brotið viðbein, en hann hlaut jafnframt höfuðáverka. BBC greinir frá.
O'Brien sagði af sér árið 2013 vegna ásakana um að hafa brotið kynferðislega gegn fjórum prestum. Brotin áttu sér stað á áttunda áratugnum þegar prestarnir voru að stíga sín fyrstu skref í starfi. Þrír þeirra störfuðu enn sem prestar þegar þeir lögðu fram kvörtun til páfagarðs.
Í yfirlýsingu vegna málsins á sínum tíma sagði sagði hann að það hafi komið tímar meðan hann var í þjónustu kaþólsku kirkjunnar „að kynferðislega hegðun mín hefur ekki staðið þær kröfur sem gerðar eru til mín sem prests, erkibiskups og kardínála.“ Hann bað einnig um fyrirgefningu þeirra sem hann hafi sært.
Málið fór ekki inn á borð lögreglunnar heldur lét hann af stöfum, viðurkenndi brot sín og baðst afsökunar.
O'Brien gagnrýndi sem kardínáli samkynhneigð mjög harðlega og sagði m.a. að hjónaband samkynhneigðra ógnaði andlegri og líkamlegri heilsu samkynhneigðra.