Palestínsk táningsstúlka, sem var handtekin í kjölfar myndbands þar sem hún sást slá ísraelskan hermann á hernumdu svæðunum á Vesturbakkanum utan undir, gerði dómssátt í málinu og hlaut átta mánaða fangelsisdóm.
Málið var tekið fyrir hjá ísraelskum herdómstól og féllst dómari á samkomulag sem stúlkan og saksóknarar hersins gerðu.
Ahed Tamimi, þá sextán ára, vakti alheimsathygli, er myndbandið var birt í desember. Margir álíta hana hetju fyrir að standa uppi í hárinu á ísraelskum hermönnum sem eru á hinum hernumdu svæðum á Vesturbakkanum í Palestínu.
Ísraelsk yfirvöld sökuðu hins vegar fjölskyldu hennar um að nota hana til að ögra sér.
Áður en Tamimi gekk til réttarsalarins í gær sagði hún að ekkert réttlæti væri hægt að fá í hernámi og að fyrirtaka málsins fyrir herdómstól Ísraela væri ólögmæt.
Lögmaður Tamimi segir að hún verði laus úr fangelsi í sumar. Tamimi játaði samkvæmt samkomulaginu fjögur af þeim tólf brotum sem hún var ákærð fyrir, m.a. líkamsárás.
Ísraelski herinn sagði í yfirlýsingu eftir að samkomulagið var kunngjört að hann myndi halda aðgerðum sínum „til að tryggja öryggi og reglu“ á Vesturbakkanum áfram.