Kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein hefur verið ákærður fyrir nauðgun og fleiri kynferðisbrot gagnvart tveimur konum. Weinstein gaf sig sjálfur fram við lögreglu á Manhattan í New York í morgun og skömmu síðar var gefin út yfirlýsing um að hann hefði verið handtekinn og ákærður. BBC greinir frá.
Í yfirlýsingu frá lögreglunni í New York er þeim hugrökku konum sem stigið hafa fram og leitað réttlætis þakkað sérstaklega fyrir.
Tugir kvenna í kvikmyndabransanum hafa sakað Weinstein um kynferðisofbeldi, þar á meðal nauðganir, en ásakanirnar hrundu af stað #metoo herferðinni. Sjálfur hefur hann alltaf neitað þessum ásökunum.
Ákærur á hendur Weinstein hafa ekki verið gerðar opinberar en New York Times greinir frá því að ein þeirra sé vegna ásakana leikkonunnar Lucia Evans sem kærði hann fyrir kynferðisbrot. Lögreglan í New York hefur einnig haft til rannsóknar nauðgunarkæru sem leikkonan Paz de la Huerta lagði fram á hendur honum. Fyrr í þessum mánuði lagði Netflix-framleiðandinn Alexandra Canosa einnig fram gögn í máli á hendur honum fyrir nauðgun og kynferðislega áreitni.