Tvöþúsund manns réðust að hinum 27 ára Mohammad Azam og tveimur vinum hans á föstudag. Vinir Azam særðust alvarlega í árásinni, aðeins nokkrum dögum eftir að samskiptaforritið WhatsApp birti auglýsingar í indverskum dagblöðum um það hvernig hamla mætti dreifingu falskra upplýsinga í forritinu. Yfir 20 hafa verið teknir af lífi án dóms og laga vegna gruns um barnsrán á tveggja mánaða tímabili í Indlandi, að því er Guardian greinir frá.
Fimm manns voru teknir af lífi skammt frá þeim stað sem Azam var myrtur 1. júlí, en þeir höfðu sést eiga samskipti við barn á götumarkaði. Hrina aftaka án dóms og laga vegna gruns um barnarán hófst í maí, þegar sjö menn voru myrtir vegna orðróms á WhatsApp. Síðan þá hefur að minnsta kosti 21 verið drepinn af þessum sökum. Stjórnvöld í Indlandi hafa gagnrýnt samskiptaforritið fyrir að koma ekki í veg fyrir að fölskum upplýsingum sé dreift meðal notenda.
Samkvæmt lögreglu voru Azam og félagar hans á heimleið til borgarinnar Hyderbad eftir að hafa heimsótt vin sinn í Bidar. Þeir stöðvuðu för sína á miðri leið til þess að bjóða börnum á svæðinu súkkulaði sem einn þeirra hafði keypt í Katar.
Eitt barnanna í hópnum byrjaði hins vegar að gráta, sem vakti grun hjá þeim fullorðnu um að ekki væri allt með felldu. Mennirnir þrír voru þá sakaðir um að vera barnaræningjar, en nýlega hafði komið upp orðrómur á samfélagsmiðlum um skipulagða barnaránsstarfsemi á svæðinu.
Azam og félagar hans náðu að flýja svæðið, en á þá réðst mun stærri hópur fólks aðeins nokkrum kílómetrum frá eftir að fólk í nágrenninu hafði deilt atvikinu sín á milli á WhatsApp. Bíll mannanna valt vegna vegtálma sem hafði verið settur upp af þeim sem höfðu heyrt af för mannanna, og í kjölfarið réðust 2.000 manns að þeim og börðu með spýtum og steinum.
Þrír lögreglumenn særðust í björgunaraðgerðum, en ofbeldið stóð yfir í um klukkustund.