„Þetta er í fyrsta skipti frá því að ég hóf störf hjá grænlenska sjónvarpinu sem við upplifum svona mikinn áhuga heimsbyggðarinnar á einhverju sem er að gerast á Grænlandi,“ segir fréttaritstjórinn Arnaq Nielsen. Fjölmiðlar víða um heim fylgjast nú grannt með borgarísjakanum mikla sem lónir fyrir utan smáþorpið Innaarsuit á vesturströnd Grænlands. Jakinn ógnar 170 manna byggð þar sem óttast er að hann brotni og flóðbylgja myndist.
Um helgina var fjallað um málið í fjölmiðlum á borð við BBC, CNN, Le Parisien, Washington Post og hjá fréttaveitunni AP.
Það var sveitarstjórinn Karl Petersen sem vakti fyrstu athygli á hættunni sem gæti fylgt borgarísjakanum og viðbrögðin erlendis frá létu ekki á sér standa. „Þegar ég skoðaði símann minn morguninn eftir þá sá ég að hringt hafði verið í mig átta sinnum erlendis frá á þremur klukkustundum,“ segir hann í samtali við grænlenska ríkissjónvarpið.
Starfsmenn grænlenska ríkissjónvarpsins hafa svo sjálfir átt fullt í fangi með að svara fyrirspurnum. Áhugann má líka merkja á heimsóknum á YouTube-rás stöðvarinnar. Myndband, þar sem sjá má borgarísjakann á hafinu úti fyrir bænum, hefur verið skoðað yfir 300 þúsund sinnum. Slík umferð hefur aldrei verið á neina frétt sjónvarpsins.
Á myndskeiðinu eru engu líkara en að jakinn sé að koma æðandi að byggðinni og einnig má sjá jaka brotna frá honum og skella í sjónum.