Michael Avenatti, lögmaður klámmyndaleikkonunnar Stormy Daniels, hefur gagnrýnt Donald Trump Bandaríkjaforseta harðlega á Twitter síðasta sólarhringinn. Avenatti segir að forsetinn sé augljóslega farinn að sýna merki vitglapa.
Alríkisdómari vísað á mánudag frá meiðyrðamáli sem Daniels höfðaði gegn forsetanum. Málið höfðaði hún eftir að Trump sakaði hana um blekkingar í tísti á Twitter. Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að forsetinn hefði mátt láta ummælin falla á grundvelli málfrelsis.
„Líkamlegt ástand Trump er það versta hjá nokkrum forseta í nútímanum og hann hefur sýnt merki vitglapa. Ættum við ekki að búast við því að forsetinn geti sýnt fram á lágmarks líkamlega og andlega heilsu? Ef hann hefur ekki úthald til að sinna starfinu hefði hann ekki átt að taka því,“ skrifaði Avenatti á Twitter í hádeginu.
.@realDonaldTrump is in the worst physical shape of any modern President and is starting to exhibit signs of dementia. Shouldn’t we expect the POTUS to maintain a minimal level of physical and mental fitness? If he didn’t have the stamina for the job, he shouldn’t have taken it.
— Michael Avenatti (@MichaelAvenatti) October 17, 2018
Í gær sagði Avenatti að Trump væri kvenhatari sem væri Bandaríkjunum til skammar. Einnig spurði hann forsetann hvað hann hefði haldið fram hjá með mörgum konum á meðan eiginkona hans var heima með nýfætt barn þeirra.
Orrahríð Avenatti á Twitter kemur í kjölfar þess að Trump kallaði Daniels „hrossafés“ og úthúðaði henni og Avenatti.
Daniels segir að hún og Trump hafi átt í ástarsambandi árið 2006, skömmu eftir að hann kvæntist Melaniu Trump forsetafrú og þau eignuðust saman soninn Barron, en forsetinn hefur vísað því á bug. Fyrrverandi lögmaður Trump, Michael Choen, hefur hins vegar viðurkennt að hafa greitt henni fyrir að þegja um sambandið, líkt og forsetinn hafi fyrirskipað.