Meirihluti höfuðkúpu 12 þúsund ára beinagrindar konu sem var meðal muna á þjóðminjasafni Brasilíu, sem varð eldi að bráð í september, hefur fundist í rústum safnsins og talið er að hægt verði að setja hana aftur saman. Yfirmaður safnsins telur að um 80 prósent af höfuðkúpunni hafi fundist og gerir ráð fyrir því að hægt verði að finna restina. BBC greinir frá.
Beinagrindin er kölluð Luzia, en hún er sú elsta sem hefur fundist í Ameríku og var höfuðdjásn safnsins. Höfuðkúpan var geymd í stálboxi í eldvarnarskáp.
Auk Luziu voru egypskir og grísk-rómverskir listmunir úr fornöld meðal muna á safninu. Einnig var þar stærsti loftsteinn sem hefur uppgötvast í Brasilíu, 5,3 tonna þungur, og beinagrind risaeðlu.
Muni sem spanna fjögurra alda tímabil, allt frá því Portúgalar komu til landsins á 14. öld þar til brasilíska lýðveldið var stofnað 1889, var þar einnig að finna, en portúgalska konungsfjölskyldan bjó eitt sinn í húsinu. 90 prósent af munum safnsins eyðilögðust í eldsvoðanum, en yfirmenn safnsins hafa kennt fjársvelti um það hvernig fór.