Hætt hefur verið við ráðstefnu leiðtoga Mið-Evrópuríkja sem halda átti í Ísrael vegna deilu Ísraels og Póllands um helförina. Greint var frá því í gær að Mateusz Morawiecki, forsætisráðherra Póllands, hefði hætt við þátttöku sína vegna ummæla Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, um Pólverja og helförina. BBC greinir frá.
Haft var eftir Netanyahu á ísraelsku fréttasíðunni Haaretz að Pólverjar hefðu aðstoðað nasista í helförinni. Ummælin voru í kjölfarið fordæmd í Póllandi á grundvelli þess að orðalag forsætisráðherrans gefi til kynna að pólska þjóðin í heild hafi unnið með Þjóðverjum í seinni heimsstyrjöldinni.
Ummæli Yisrael Katz, sem er settur utanríkisráðherra Ísraels, um að „Pólverjar innbyrði gyðingahatur með móðurmjólkinni“ hafa ekki síður vakið reiði.
Sagði Morawiecki ummæli ráðherrans fullkomlega „óásættanleg“.
Nasistar tóku sex milljónir gyðinga af lífi og áttu flestar aftökurnar sér stað í Póllandi og starfaði hluti Pólverja með nasistum. Sex milljónir Pólverja létust hins vegar einnig í heimsstyrjöldinni síðari og var um helmingur þeirra gyðingar.
Pólland, Tékkland, Ungverjaland og Slóvakía áttu að taka þátt í ráðstefnunni, sem Ísrael ætlaði að halda undir heitinu Visegrad-hópurinn. Netanyahu tilkynnti hins vegar í dag að án Póllands myndu leiðtogar ríkjanna eingöngu eiga tvíhliða viðræður við sig og að Visegrad-nafnið ætti ekki lengur við.