Andlát fyrrverandi þjóðhöfðingja myndi verða helsta fréttamálið í flestum löndum. Það var þó ekki raunin í Egyptalandi þar sem Mohammed Morsi, fyrrverandi forseti landsins sem var hrakinn frá völdum af her landsins fyrir sex árum, hné niður í réttarsal á mánudag og lést.
Morsi hafði nýlokið 20 mínútna löngum vitnisburði í máli þar sem hann er ákærður fyrir njósnir en hann var 67 ára gamall.
Lítið var fjallað um skyndilegt fráfall hans í egypskum fjölmiðlum. Helsta fréttaefni dagblaða landsins var Afríkukeppnin í knattspyrnu, sem fer fram þar í landi og hefst á föstudag. Lítillega var fjallað um andlát Morsi á síðum sem venjulega fjalla um glæpamál.
Ríkissjónvarpsstöð Egyptalands minntist ekki einu orði á að Morsi, fyrsti lýðræðislega kjörni þjóðhöfðingi landsins, væri fyrrverandi forseti. Í staðinn var hann einungis nefndur fullu nafni.
Umfjöllunin var heldur snubbótt, ekki nema 42 orð á arabísku:
„Mohammed Morsi lét lífið í gær í réttarsal. Hinn látni bað dómara um að fá að tjá sig og fékk leyfi til þess. Eftir að dómhaldi var slitið hné hann niður og lét lífið. Líkið var flutt á spítala og nauðsynlegar ráðstafanir verða gerðar,“ kom fram í fréttatímanum.
Fjallað er um á Twitter að allar fréttastöðvar landsins hafi fengið sama textann sendan frá stjórnvöldum. Fréttaþulur Extra News-stöðvarinnar endaði sinn fréttaflutning á því að gera þau mistök að segja að skeytið hafi verið sent úr Samsung-snjalltæki:
Samkvæmt stjórnarandstæðingum var fréttatilkynningin um andlát fyrrverandi forsetans send til fréttastöðva frá stjórnvöldum í gegnum Whatsapp-forritið.
Í kjölfar valdaráns hersins 2013 fóru egypsk yfirvöld í herferð gegn múslimska bræðralaginu, en Morsi var meðal annars ákærður fyrir að hafa lekið ríkisleyndarmálum Egyptalands og Katar til bræðralagsins, hafði verið í gæsluvarðhaldi síðan.