Meðalaldurinn á nýsjálenska þinginu hríðlækkaði um tíma í fyrradag þegar rúmlega mánaðargamall sonur Tāmati Coffey, þingmanns Verkamannaflokksins, fylgdi föður sínum í þingsal.
Þegar röðin var komin að Coffey í ræðustól bauðst Trevor Mallard, forseti þingsins, til að gæta hins unga Tūtānekai Smith-Coffey og fór vel á með félögunum þar sem Mallard gaf þeim stutta pela. Sjálfur er Mallard þriggja barna faðir og fagnaði hann komu „mjög mikilvægs gests“ í stól forseta þingsins.
Normally the Speaker’s chair is only used by Presiding Officers but today a VIP took the chair with me. Congratulations @tamaticoffey and Tim on the newest member of your family. pic.twitter.com/47ViKHsKkA
— Trevor Mallard (@SpeakerTrevor) August 21, 2019
Coffey og eiginmaður hans, Tim Smith, eignuðust soninn í júlí með aðstoð staðgöngumóður. Coffey er nýkominn til baka úr fæðingarorlofi og virtust þingmennirnir almennt ánægðir að fá félagsskap í þingsal, og svona líka fallegan, líkt og þingmaðurinn Gareth Hughes segir í færslu sinni á Twitter.
Lovely to have a baby in the House, and what a beautiful one @tamaticoffey pic.twitter.com/EP6iP9eQES
— Gareth Hughes (@GarethMP) August 21, 2019
Coffey segist eingöngu hafa fundið fyrir stuðningi frá samstarfsmönnum sínum.
Tūtānekai er síður en svo fyrsta barnið sem gerir það gott í þingsölum heimsins, en ungabörn hafa almennt fengið góðar viðtökur í þingsölum, ef frá eru talin viðbrögð Piu Kjærsgaard, forseta danska þjóðþingsins, þegar Mette Abildgaard, þingmaður Íhaldsflokksins mætti með fimm mánaða gamla dóttur sína, Esther Marie, í þingsal fyrr á þessu ári.