Sjö karlmenn og fimm konur skipa kviðdóm sem dæma mun í máli Harvey Weinstein. Ellefu dagar eru síðan réttarhöldin hófust og hefur tíminn hingað til farið í að ná sátt um þá sem skipa kviðdóminn, en 700 manns komu til greina.
Réttarhöldin fara fram í New York og Weinstein gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði hann fundinn sekur, en hann er ákærður í fimm liðum, meðal annars fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn tveimur ónafngreindum konum. Hann neitar sök.
Sama dag og réttarhöldin hófust var Weinstein ákærður í tveimur liðum fyrir nauðgun og kynferðisbrot í tengslum við tvö aðskilin atvik á tveimur dögum árið 2013. Brotin áttu sér stað í Los Angeles.
Yfir 80 konur hafa stigið fram og ásakað hann um kynferðislega áreitni og kynferðislegt ofbeldið síðustu þrjú ár, en fyrstu ásakanirnar urðu kveikjan að #metoo-hreyfingunni.
Weinstein gaf sig fram við lögreglu í maí 2018 og var í kjölfarið ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn konunum tveimur en var látinn laus mánuði síðar gegn einnar milljónar dollara tryggingu. Ákærurnar voru sex í upphafi en dómari lét eina þeirra niður falla vegna ósamræmis í vitnisburði meints fórnarlambs.
Saksóknari og lögmenn Weinstein munu flytja opnunarávörp sín á miðvikudag en ráðgert er að réttarhöldin taki um átta vikur.