Donald Trump, Bandaríkjaforseti, gagnrýnir hugsanlegar nafnabreytingar þarlendra íþróttafélaga, en umræddar breytingar hafa mikið verið til umræðu undanfarnar vikur. Nú síðast gaf bandaríska fótboltaliðið Washington Redskins út að það hygðist endurskoða nafn félagsins.
Er orðið redskin (ísl. rauðskinni) talið vísa til indíána, frumbyggja Norður-Ameríku. Ýmsir líta svo á að orðið sé niðrandi í garð frumbyggja Bandaríkjanna. Sömuleiðis hafa forsvarsmenn Cleveland Indians gefið út að þeir hyggist endurskoða nafn félagsins. Kom tilkynningin í kjölfar ákalls frá auglýsendum liðsins.
Í tísti sem Bandaríkjaforseti sendi frá sér í gær gagnrýnir hann hugsanlegar nafnabreytingar harðalega. Segir hann að nöfn liðanna eigi að gefa í skyn styrkleika liðsins en ekki veikleika. Sakar hann liðin sömuleiðis um rétttrúnað.
They name teams out of STRENGTH, not weakness, but now the Washington Redskins & Cleveland Indians, two fabled sports franchises, look like they are going to be changing their names in order to be politically correct. Indians, like Elizabeth Warren, must be very angry right now!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) July 6, 2020