Háskólarnir Harvard og MIT hafa kært ríkisstjórn Donalds Trump og beðið dómstóla um að stöðva ákvörðun bandarískra stjórnvalda um að fella úr gildi landvistarleyfi erlendra stúdenta sem stunda þar nám ef allir áfangar sem þeir eru skráðir í verða kenndir í fjarnámi vegna kórónuveirufaraldursins.
Kæran kemur í kjölfar yfirlýsingar frá stofnuninni ICE sem fer með mál innflytjenda í Bandaríkjunum (US Immigration and Customs Enforcement), en mbl.is hefur fjallað um málið á síðustu dögum. Ákvörðunin kemur til með að hafa áhrif á fjölda erlendra námsmanna sem leggja stund á nám í Bandaríkjunum.
Íslensk stjórnvöld hafa lýst yfir áhyggjum yfir þessari ákvörðun, bæði í samtali við sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi og í samskiptum sendiráðs Íslands í Washington við bandarísk stjórnvöld.
Í kæru Harvard og MIT segir að niðurfelling landvistarleyfa myndi valda erlendum nemendum miklum skaða, bæði fjárhagslegum og persónulegum. Þá er ákvörðun stjórnvalda sögð handahófskennd og ólögleg.
Í tilkynningu frá forseta Harvard-háskóla kemur fram að skólinn muni leggja áherslu á að erlendir nemendur í Harvard, sem og öðrum skólum þar í landi, geti haldið áfram námi sínu án þess að óttast að vera vísað úr landi.
Ríkisstjórn Trump stefnir á að opna skóla og háskóla við byrjun haustannar í september, þótt smitum hafi fjölgað víða í Bandaríkjunum. Er afturköllun á landvistarleyfum stúdenta talin vera ætluð til að setja þrýsting á menntastofnanir svo þær fari varlega þegar skólar opna í haust.
Í kærunni er lögð fram sú krafa um að ákvörðun stjórnvalda verði stöðvuð og dæmd ólögleg.
Flestir framhalds- og háskólar í Bandaríkjunum eiga enn eftir að gefa það út hvernig námi verður háttað þegar haustönn hefst. Sumir skólar hafa ákveðið að kennt verði með svokölluðu blönduðu kerfi, þar sem hluti námsins fer fram í fjarnámi og hinn hlutinn í staðnámi.
Í slíkum tilfellum þurfa skólar að sýna fram á að erlendir nemendur séu að taka eins marga tíma og mögulega hægt er í staðnámi, svo nemendurnir haldi landvistarleyfi sínu, er kemur fram í yfirlýsingu ICE.
Þó er talið líklegt að margir háskólar muni bjóða upp á fjarkennslu á haustönn vegna kórónuveirufaraldursins. Í gær, miðvikudag, greindust rúmlega sextíu þúsund manns með veiruna, og talið er að um 131 þúsund manns hafi látist af völdum hennar.