Demókratinn sem gæti eyðilagt allt fyrir Biden

Joe Manchin, öldungadeildarþingmaður demókrata, og Joe Biden, forseti Bandaríkjanna.
Joe Manchin, öldungadeildarþingmaður demókrata, og Joe Biden, forseti Bandaríkjanna. Ljósmynd/Samsett

Nýr Bandaríkjaforesti, Joe Biden, kappkostar nú við að kvitta upp á alls kyns lög sem eiga að vinda ofan af embættisverkum forvera hans, Donald Trump. Það sem margir binda mestar vonir við eru róttækar áætlanir Biden um grænni og umhverfisvænni framtíð í Bandaríkjunum. Hann vill afturkalla ýmis ívilnanir og leyfi sem stórtækum aðilum innan jarðefnaeldneytisiðnaðarins var gefið í forsetatíð Trumps.

Það er þó einn demókrati í öldungadeild Bandaríkjaþings sem gæti komið í veg fyrir þetta allt saman, að því er greinendur CNN halda fram: Joe Manchin, öldungadeildarþingmaður Vestur-Virginíu fyrir demókrataflokkinn. Þegar Manchin bauð sig fram til ríkisstjóra í Vestur-Virginíu árið 2010, ríki þar sem kolanámur eru mjög félagslega og efnahagslega mikilvægar, skaut hann fast að frumvarpi demókrata um endurnýjanlega orkugjafa – bókstaflega.

Til marks um sannfæringu sína dró hann upp skotvopn og miðaði henni á frumvarpið sjálft, sem hann hafði prentað út og fest á krossviðarplötu. Hann sagðist svo ætla að lögsækja bandarísku umhverfisstofnunina (EPA) og kveða frumvarpið í kútinn, áður en hann hleypti af byssunni.

Biden þarf Manchin

Það er þessi öldungadeildarþingmaður, Joe Manchin, sem gæti stöðvað öll áform Joes Biden um „græn frumvörp“ vegna þess að öldungadeildinni er skipt alveg jafnt á milli demókrata og repúblikana. Fari svo að hann kjósi gegn Biden um loftslagsmál er ekki víst að metnaðarfull og róttæk frumvörp Bidens nái í gegnum öldungadeildina.  

Meðal þess sem Biden hefur nú þegar gert er að vinda ofan af ákvörðun Donalds Trump um að draga Bandaríkin úr Parísarsamkomulaginu. Þá hefur Biden lagt stein í götu þeirra stundað hafa leit að jarðgasi á landi í ríkiseigu. Biden lofar því að í hans stjórnartíð verði loftslagsmálum sýnd mikil athygli og að vísindamenn fái frekar um það ráðið hver stefna Bandaríkjanna verður í málaflokknum, frekar en kaupsýslumenn og olíujöfrar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert