Talíbanar í Afganistan hafa lýst yfir ábyrgð á árás á heimili varnarmálaráðherra Afganistans í Kabúl í nótt. Mannfall varð við árásina þar sem árásarmenn voru vopnaðir byssum.
Talsmaður talíbana á svæðinu segir að aðeins sé um byrjunina á árásum gegn háttsettum embættismönnum stjórnvalda í Afganistan að ræða.
„Í nótt var gerð píslavættisárás á heimili varnamálaráðherra,“ sagði Zabihullah Mujahid, talsmaður talíbana, í yfirlýsingu í morgun og bætti við að von væri á fleiri „hefndaraðgerðum“ af þeirra hálfu.