Flugfélagið Air India hefur breytt stefnu sinni í áfengisþjónustu í flugi í kjölfar hneykslismáls þegar maður úr framkvæmdastjórn bankans Wells Fargo, mígið á sessunaut sinn, um borð í flugvél félagsins. Málið hefur kostaði flugfélagið háar fjárhæðir en það hefur hlotið yfir 40.000 dollara í sekt.
Maðurinn sem um ræðir heitir Shankar Mishra og er sagður hafa verið undir áhrifum áfengis í flugferðinni frá New York í Bandaríkjunum, til Delí á Indlandi. Hann var í fyrsta farrými og sat þar við hlið 72 ára konu og á að kastað af sér þvagi á konuna.
Flugfélagið hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir meðferð sína á kvörtun konunnar og fyrir að leyfa bankastjóranum að fara frá borði eins og ekkert hefði í skorist þegar flugvélin lenti.
Í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér kom fram að áhöfnin hefði metið aðstæður þannig að meintur gerandi hefði ekki ógnað flugöryggi.
„Við höfum endurskoðað núverandi stefnu okkar um áfengisþjónustu í flugi með hliðsjón af venjum annarra flugrekenda með leiðbeiningar bandarísku veitingahúsasamtakanna til hliðsjónar.“