Lögreglan í San Francisco hefur birt myndskeið úr líkamsmyndavél lögreglumanns sem sýnir árásina sem Paul Pelosi, eiginmaður Nancy Pelosi fyrrverandi forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, varð fyrir í október.
Árásamaðurinn braust inn á heimili þeirra hjóna og réðst á Paul með hamri. Paul hlaut höfuðkúpubrot og áverka á hægri handlegg og höndum.
Árásina má sjá á myndskeiðinu hér að neðan.