Yfirvöld í Rússlandi segjast hafa handtekið þrjá einstaklinga sem grunaðir eru um að hafa undirbúið hryðjuverkaárás í suðurhluta landsins.
Vika er liðin frá hryðjuverkaárásinni í Moskvu sem varð hið minnsta 144 manns að bana.
Rússneska leyniþjónustan (FSB) segist hafa komið í veg fyrir hryðjuverk þriggja einstaklinga frá ótilgreindu Mið-Asíuríki.
Talið er að hinir handteknu ætluðu að koma sprengju fyrir á almannafæri í Stavropol-héraði.
Rússneski fjölmiðillinn RIA Novsti greindi frá því að heimatilbúnar sprengjur og efnavopn hafi fundist á heimili eins.