Vilja frekari upplýsingar um dauða ungu stúlkunnar

Sex ára palestínska stúlkan Hind Rajab.
Sex ára palestínska stúlkan Hind Rajab. AFP

Bandaríska utanríkisráðuneytið vill að Ísrael veiti frekari upplýsingar sem tengjast dauða Hind Rajab, sex ára palestínskrar stúlku, á Gasasvæðinu í janúar.

Frá þessu greindi Matthew Miller, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, á blaðamannafundi í dag.

Rajab og fjölskylda hennar voru að flýja Gasaborg og virðast þau hafa mætt skothríð frá herliði Ísraela.

Á upptökum Rauða hálfmánans mátti heyra stúlkuna ræða við viðbragsaðila hjálparsamtakanna þar sem hún óskaði eftir hjálp skömmu áður en hún lést. Fjölskyldumeðlimir fundu lík stúlkunnar í sundurskotnum bíl 12 dögum síðar.

Þá fannst sjúkrabifreið sem send var til að aðstoða stúlkuna gjörónýt og fundust tveir sjúkraflutningamenn látnir.

Í yfirlýsingu sakaði Rauði hálfmáninn ísraelska herinn um að hafa ráðast viljandi á sjúkrabílinn um leið og hann kom á vettvang.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert