Fjórtán ára gamall ökumaður

Lögreglan í Keflavík stöðvaði í morgun ferð 14 ára gamals pilts í Sandgerði, þar sem hann var að aka bíl sem hann hafði tekið ófrjálsri hendi heima hjá sér. Segir lögreglan, að pilturinn hafi ekki stöðvað bílinn fyrr en eftir nokkra eftirför.

Einn ökumaður var tekinn á Suðurnesjum í nótt vegna meints ölvunar við akstur. Einn útafakstur varð á Sandgerðisvegi en engin slys á fólki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert