Fimm ára barn pyntað hrottalega í Írak

Að minnsta kosti 14 Írakar létu lífið og 22 slösuðust í árásum uppreisnarmanna í Írak í dag. Þá fundust tíu lík einstaklinga, sem teknir höfðu verið af lífi í landinu í dag. Á meðal þeirra er lík fimm ára barns sem greinilegt er að hefur verið pyntað hrottalega.

Fimm íraskir hermenn féllu í árás uppreisnarmanna á varðstöð þeirra í Jibal Hamreen suður af Kirkuk, í norðurhluta landsins í dag og einn hermaður féll og átta særðust er sprengja sprakk við vegatálma sem þeir gættu suður af Kirkuk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert