Snjórinn kominn í höfuðborginni

mbl.is/Brynjar Gauti

Fyrsti snjór vetrarins féll í höfuðborginni í morgun, sumum til ánægju en öðrum til armæðu. Töluverðar líkur eru hins vegar á því að snjórinn hverfi á morgun því Veðurstofan spáir hlýnandi veðri og rigningu á höfuðborgarsvæðinu. Ungi maðurinn á myndinni var aftur á móti hinn ánægðasti með snjókomuna í Reykjavík í morgun og fór í snjókast í frímínútum ásamt félögum sínum í Melaskóla.

Þessar stúlkur voru líka ánægðar með snjóinn í Melaskóla.
Þessar stúlkur voru líka ánægðar með snjóinn í Melaskóla. mbl.is/Brynjar Gauti
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert