Umferðatafir áfram í Ártúnsbrekku

Frá Ártúnsbrekku um hádegið
Frá Ártúnsbrekku um hádegið mbl.is/Júlíus

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þá verða miklar umferðartafir áfram í Ártúnsbrekku jafnvel til kl. 17:00. Umferðaróhapp varð kl. 12:18 á Vesturlandsvegi í Ártúnsbrekku.  Talsverðan tíma tekur að opna veginn aftur svo umferð komist á með venjubundnum hætti en það valt vörubifreið með fullfermi sem ekið var afrennsli frá Reykjanesbraut austur Vesturlandsveg í Ártúnsbrekku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert