Meirihluti fylgjandi ESB-aðild

Fánar Evrópusambandsins blakta utan við höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar ESB í Brussel.
Fánar Evrópusambandsins blakta utan við höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar ESB í Brussel. mbl.is/GSH

Meirihluti landsmanna er hlynntur aðild Íslands að Evrópusambandinu og upptöku evru, ef marka má skoðanakönnun, sem Capacent Gallup hefur gert fyrir Samtök iðnaðarins og sagt var frá í fréttum Útvarpsins.

Könnunin var gerð síðustu dagana í júní og fyrstu dagana í júlí en SI hafa látið gera slíkar kannanir með reglubundnum hætti undandarin ár. Þegar spurt var hvort viðkomandi væri hlynntur eða andvígur því að teknar yrðu upp aðildarviðræður við Evrópusambandið kváðust 6 af hverjum 10 ýmist mjög eða frekar hlynntir en 2 af hverjum 10 voru andvígir.

Þá sagðist ríflega helmingur hlynntur ESB-aðild en um fjórðungur var andvígur því. Þá sögðust um 60% svarenda hlynnt því að evra yrði tekin upp sem gjaldmiðill hér í stað krónu en rúmlega 20% voru andvíg því.

Fleiri stuðningsmenn Framsóknarflokksins, Frjálslynda flokksins, Vinstri grænna og Samfylkingar eru hlynntir ESB aðild en eru henni andvígir.

Fram kom í könnuninni að 45 til 50% stuðningsmanna Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins, Frjálslynda flokksins og VG eru hlynnt því að hafnar verði aðildarviðræður en um 85% stuðningsmanna Samfylkingarinnar eru á þeirri skoðun. Þá eru fleiri stuðningsmenn allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins hlynntir aðild að Evrópusambandinu en eru andvígir henni. Loks eru fleiri stuðningsmenn allra flokka hlynntir evru en eru andvígir. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert