Meirihlutaviðræður Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í Borgarbyggð kláruðust ekki í kvöld. Björn Bjarki Þorsteinsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins og forseti sveitarstjórnar, segir að þeim verði áframhaldið um helgina. „Það eru engin frekari tíðindi. Við erum að máta okkur saman. Við ætlum að þreifa okkur áfram um helgina. Það er góður taktur í samtalinu,“ segir Björn Bjarki.
Eins og fram kom á mbl.is fyrr dag slitnaði upp úr meirihluta samstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks vegna hagræðingaraðgerða í skólamálum á Hvanneyri.