Selja þarf 15 sæti til viðbótar í leiguflugið á vegum Grétars Sigfinns Sigurðarsonar frá Reykjavíkurflugvelli til Frakklands á næstu klukkutímum til þess að ferðalagið verði að veruleika. Greiða þarf fyrir opnun skrifstofu leiguflugfélagsins í fyrramálið en búið er að selja um 85 sæti af þeim 100 sem eru til sölu.
Um dagsferð er að ræða en farið veður frá Reykjavíkurvelli klukkan sjö á sunnudagsmorguninn og brottför frá París er klukkan þrjú aðfaranótt mánudags. Grétar ætlaði að bjóða upp á sambærilega ferð á leik Íslands og Englands í Nice í síðustu viku en það gekk að lokum ekki upp vegna seinagangs með greiðslur hjá þeim sem áttu bókað flug
Í samtali við mbl.is segir Grétar að áhugasamir geti haft við sig til að tryggja sér miða í vélinni en flugmiðar fram og til baka kosta 154.900 krónur.